Ábending: Ef grímuumgjörðin fellur aftur og er of nálægt eyrunum, eins og
sýnt er á myndinni hér að neðan, gæti þurft minni grímuumgjörð.
Ábending: Ef grímuumgjörðin fellur fram á höfuðið og er of nálægt augunum,
eins og sýnt er á myndinni hér að neðan, gæti þurft stærri grímuumgjörð.
Notkun grímunnar
1. Tengið CPAP-slöngurnar (sem fylgja með CPAP-tækinu) við hraðaftengið
á beygjustykkinu.
2. Kveikið á meðferðartækinu, leggist niður og andið eðlilega.
3. Gott er að prófa mismunandi svefnstellingar þar til þægileg stelling er
fundin. Eðlilegt er að eitthvað loft leki en ef mikils loftleka verður vart þarf
að fínstilla grímuna betur.
232