Tabla de contenido
Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 48
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Vinsamlegast lestu, meðtaktu og fylgdu öllum öryggisupplýsingum sem eru í þessum leiðbeiningum áður en þetta festingartengi (Anchorage
Connector) er notað. EF LEIÐBEININGUM ÞESSUM ER EKKI FYLGT EFTIR, GETUR ÞAÐ VALDIÐ ALVARLEGUM MEÐSLUM, LÍKAMSTJÓNI EÐA
DAUÐA.
Leiðbeiningar þessar verður að afhenda notanda þessa búnaðar. Geymdu þessar leiðbeiningar til að styðjast við í framtíðinni.
Tilætluð notkun:
Þetta festingartengi er ætlað til notkunar sem hluti af fullkomnu fallvarnarkerfi.
Öll önnur notkun, þ.m.t., en takmarkast ekki við, meðhöndlun efna, notkun í afþreyingar- eða íþróttaskyni eða önnur notkun sem ekki er lýst í
notendaleiðbeiningunum, er ekki samþykkt af 3M og gæti valdið alvarlegum meiðslum eða dauða.
Einungis þjálfaðir notendur á vinnustað skulu nota þennan búnað.
!
VIÐVÖRUN
Þetta festingartengi er hluti af fallvarnarkerfi. Ætlast er til að allir notendur séu fullþjálfaðir í öruggri uppsetningu og notkun þeirra eigin fallvarnarkerfis.
Röng notkun þessa búnaðar getur valdið alvarlegum meiðslum eða dauða. Fyrir rétt val, notkun, viðhald og þjónustu skaltu lesa þessar
notendaleiðbeiningunum og allar ráðleggingar framleiðanda, ræða við yfirmann þinn eða hafa samband við tæknilega þjónustu 3M.
Til að fyrirbyggja áhættuna sem fylgir því að starfa með festingartenginu sem gæti, ef ekki er komið í veg fyrir það, valdið alvarlegu
líkamstjóni eða dauða:
-
Skoðaðu búnaðinn fyrir hverja notkun, a.m.k. árlega og ef fall hefur átt sér stað. Skoðaðu hann í samræmi við notandaleiðbeiningarnar.
-
Ef skoðunin leiðir í ljós óöruggt ástand eða galla skal taka búnaðinn úr umferð og gera við hann eða endurnýja í samræmi við
notendaleiðbeiningunum.
-
Allan búnað sem hefur verið notaður í falli eða orðið fyrir miklu höggi þarf tafarlaust að taka úr umferð og farga.
-
Búnaðinn má aðeins setja upp á sérstöku undirlagi eða mannvirki sem lýst er í notendaleiðbeiningunum. Uppsetning og notkun fyrir utan umfangs
leiðbeininga þarf að vera samþykkt af 3M Fall Protection.
-
Það undirlag eða mannvirki sem festingartengið er fest við verður að þola þann kyrrstöðuþunga sem tilgreindur er fyrir festinguna í
notendaleiðbeiningunum.
-
Aðeins má tengja önnur undirkerfi fallvarnar við tilgreindan festipunkt á búnaðinum.
-
Áður en borað er eða fest skal tryggja að snerting eigi sér ekki stað við raflínur, gasleiðslur eða önnur mikilvæg innfelld kerfi af bornum eða
búnaðinum.
-
Tryggja skal að öll fallvarnarkerfi/undirkerfi sem eru samsett úr íhlutum mismunandi framleiðenda séu samhæfð og mæti kröfum viðeigandi staðla,
þ.m.t. staðlinum ANSI Z359 eða öðrum viðeigandi fallvarnarkóðum, stöðlum eða kröfum. Alltaf skal ráðfæra sig við hæfan eða vottaðan aðila, áður
en þessi kerfi eru notuð.
-
með tilliti til afmyndunarréttrar þykktarÁvallt skal koma búnaðinum fyrir neðst í glugganotendaleiðbeiningunum
Til að minnka áhættuna sem fylgir því að starfa hátt uppi, sem gæti, ef ekki er komið í veg fyrir það, valdið alvarlegu líkamstjóni eða
dauða:
-
Tryggðu að heilsa þín og líkamlegt ástand geri þér örugglega kleift að þola allt það álag sem fylgir því að starfa hátt uppi. Ráðfærðu þig við lækni ef
þú hefur einhverjar spurningar varðandi hæfni þína til að nota þennan búnað.
-
Aldrei skal fara yfir leyfilega getu fallvarnarbúnaðarins.
-
Aldrei skal fara umfram hámarkslengd frjáls falls sem fallvarnarbúnaðurinn leyfir.
-
Ekki nota neinn fallvarnarbúnað sem bilar við prófun eða við eftirlit, eða ef þú hefur áhyggjur af notkun búnaðarins eða telur að hann henti ekki í það
verk sem er fyrir höndum. Hafðu samband við tæknilega þjónustu 3M ef þú ert með einhverjar spurningar.
-
Sum undirkerfi og samsetningar íhluta geta truflað notkun þessa búnaðar. Einungis skal nota tengingar sem eru samhæfðar við þennan
búnað. Ráðfærðu þig við 3M fyrir notkun þessa búnaðar með íhlutum eða undirkerfum sem eru frábrugðin þeim kerfum sem er lýst í
notendaleiðbeiningunum.
-
Nota skal auka varúðarráðstafanir þegar verið er að vinna nálægt tækjabúnaði sem er á hreyfingu (dæmi: á olíuborpöllum), nálægt rafmagnshættu,
við mjög hátt eða lágt hitastig, við efnahættu, þar sem sprengihætta er eða hættulegar gastegundir, skarpar brúnir, eða undir hlutum sem gætu fallið
á þig eða á fallvarnarbúnaðinn sjálfan.
-
Notaðu Arc Flash- eða Hot Works-búnað þegar þú vinnur í mjög heitu umhverfi.
-
Forðastu yfirborðsfleti og hluti sem geta skaðað notanda eða búnaðinn.
-
Tryggðu að það sé viðeigandi pláss til að falla þegar þú vinnur hátt uppi.
-
Aldrei breyta eða umbreyta fallvarnarbúnaðinum. Einungis 3M eða aðilar sem hafa skriflegt umboð frá 3M mega gera við þennan búnað.
-
Áður en fallvarnarbúnaður er notaður skal tryggja að neyðaráætlun sé til um það hvernig bregðast skuli samstundis við ef fall eða slys á sér stað.
-
Ef fall á sér stað skal leita læknishjálpar strax fyrir þann starfsmann sem fallið hefur.
-
Ekki skal nota líkamsbelti til að stöðva fall. Einungis skal nota fullt líkamsbeisli til að stöðva fall.
-
Lágmarka skal sveiflur með því að vinna eins beint fyrir neðan festipunktinn og mögulegt er.
-
Ef þjálfun fer fram með þessum búnaði verður að nota annað fallvarnarkerfi svo að sá sem er í þjálfun sé ekki í hættu við að falla óvart til jarðar.
-
Alltaf skal nota viðeigandi persónuhlífar þegar verið er að setja upp, nota eða hafa eftirlit með búnaðinum/kerfinu.
EYÐUBLAÐ NR.: 5908299 ENDURSK.: A
97
IS
Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido