3M PELTOR ComTac VIII Headset Manual Del Usuario página 110

Tabla de contenido
Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 57
!
VIÐVÖRUN
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Frálag styrkstýrðrar rásar í þessum heyrnarhlífum gæti farið
fram yfir ytri hávaðamörk.
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika eyrnahlífanna.
• Afköst geta minnkað eftir því sem rafhlöðuhleðsla minnkar.
Gera má ráð fyrir því að rafhlaðan í eyrnahlífunum endist
dæmigert í um 50 klukkutíma við samfellda notkun með
styrkstýrðri hljóðdeyfingu.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru þessari.
Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Tækið hentar ekki fyrir háværan og samfelldan hljóðstyrk.
• Ekki má nota snúrutengingu tækisins til afþreyingarhlustunar
þar sem frálagsstyrkur takmarkast ekki við nauðsynlegt
skaðleysisstig.
• Frálag hljóðrásar í þessum heyrnarhlífum getur farið fram
yfir dagleg vámörk hávaða.
2.2. VIÐVÖRUN
• Sé röng rafhlaða notuð, getur verið hætta á sprengingu.
• Hlaðið ekki rafhlöðurnar við hærra hitasig en 45°C (113°F).
• Notaðu eingöngu einnota AA eða AAA-rafhlöður (eins og við
á) eða 3M™ PELTOR™ Ni-MH LR6NM eða LR03NM
hleðslurafhlöður (eins og við á). Ekki er víst að
hleðslurafhlöðurnar séu í boði á öllum markaðssvæðum.
• Hætta er á eldsvoða og brunasárum, séu Lithium-ion
rafhlöður notaðar. Ekki opna, brjóta, kveikja í eða hita upp í
meira en 55°C (131°F).
• Notaðu ávallt sértilgreinda 3M varahluti. Sé notast við aðra
varahluti en upprunalega gæti það dregið úr verndinni sem
varan á að veita.
2.3. ATHUGASEMD
• Þegar heyrnarhlífar þessar eru notaðar í samræmi við
þessar leiðbeiningar notenda, draga þær úr váhrifum frá
skyndilegum hávaða, til dæmis byssuskotum Erfitt er að
segja fyrir um þá heyrnarvernd sem þörf er á eða í raun er
veitt hvað varðar váhrif af skyndilegum hávaða. Það hefur
áhrif á vernd gegn hávaða frá byssuskotum um hvaða
tegund vopns er að ræða, hve mörgum skotum er hleypt af,
hvaða heyrnarhlífar eru valdar, hvernig þær passa og eru
notaðar, hvernig um þær er annast og fleira. Kynntu þér
betur heyrnarvernd gegn skyndilegum hávaða á vefsíðunni
www.3M.com/hearing.
• Heyrnarhlífar þessar eru búnar innstungu fyrir viðtæki og
styrkstýrðri hljóðdeyfingu. Notandi ætti að kynna sér rétta
notkun þeirra áður en hún hefst. Ef hljóð er bjagað eða
vart verður við bilun ætti notandi að leita ráða hjá
framleiðanda um viðhald og hvernig skipta á um rafhlöðu.
• Á heyrnarhlífunum er innstunga fyrir öryggistengt
hljóðtæki. Notandi ætti að kynna sér rétta meðferð fyrir
notkun. Ef hljóð er bjagað eða vart verður við bilun ætti
notandi að leita ráða framleiðanda vegna viðhalds.
• Hitastig við notkun: -40°C (-40°F) til 55°C (131°F).
• Við hitastig undir frostmarki þarf að hita eyrnahlífarnar fyrir
notkun.
• Ekki nota saman gamlar og nýjar rafhlöður.
• Ekki nota saman alkaline, venjulegar (karbon-sink) eða
hleðslurafhlöður.
• Farðu eftir reglum á hverjum stað um förgun fastra efna til
að farga rafhlöðum á ábyrgan hátt.
• Notaðu aðeins einnota AAA alkaline eða LR03NM Ni-MH
hleðslurafhlöður eða einnota LR03L líþíumrafhlöður.
• Varúð – Myndefni með vöru er aðeins til útskýringar.
3.
VOTTANIR
Öll samþykki sem vísað er til í þessum hluta eiga ekki við um
vöruna þína. Ef sumar vottanir eiga ekki við um vöruna þína
kemur það fram á merkimiða vörunnar.
3.1. ESB-VOTTANIR
ESB
3M Svenska AB lýsir því hér með yfir að PPE-gerðar
heyrnartólin eru í samræmi við reglugerð (EU) 2016/425 og
aðrar viðeigandi tilskipanir til að uppfylla kröfur vegna
CE-merkingar.
Persónuhlífarnar er endurskoðaðar árlega af SGS Fimko Ltd.,
Takomotie 8, FI-00380 Helsinki, Finnlandi, vottunarstofu nr.
0598, og gerðarvottaðar af PZT GmbH, vottunarstofu nr.
1974, Bismarckstrasse 264 B, 26389 Wilhelmshaven,
Þýskalandi.
Varan hefur verið prófuð og vottuð í samræmi við
EN 352-1:2020, EN 352-4:2020 og EN 352-6:2020.
Hægt er að fá upplýsingar um viðeigandi löggjöf með því að
sækja samræmisyfirlýsingu (DoC) á www.3M.com/peltor/doc.
Samræmisyfirlýsingin sýnir einnig ef aðrar gerðarvottanir
gilda um þau. Þegar samræmisyfirlýsing er sótt, finndu
vinsamlegast hlutanúmer þitt. Þú finnur hlutanúmer
eyrnahlífanna neðst á annarri skálinni. Dæmi um það má sjá
á myndinni hér að neðan.
YYYY/MM
XXXXXXXXXX
Einnig er hægt að fá send afrit af samræmisyfirlýsingu og
viðbótarupplýsingum sem krafist er í reglugerðum og
tilskipunum með því að hafa samband við 3M í því landi þar
sem varan var keypt. Upplýsingar um tengiliði má finna aftast
í þessum notendaleiðbeiningum.
4.
STAÐLATÖFLUR ÚTSKÝRÐAR
Hljóðdeyfingin var fundin á meðan slökkt var á tækinu.
4.1. EVRÓPA OG ANZ
3M mælir eindregið með því að hver og einn notandi felli allar
heyrnarhlífar vandlega að sér. Rannsóknir benda til þess að
stundum sé hljóðeinangrun minni en hljóðdeyfingargildi á
umbúðum gefa til kynna vegna frávika við að fella hlífarnar að
hverjum notanda fyrir sig og færni viðkomandi og hvatningu til
þess.
IS
105
Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

Mt14h418a-02 geMt14h418a-02 gn

Tabla de contenido