Hallde RG-400i Manual De Instrucciones página 46

Ocultar thumbs Ver también para RG-400i:
Tabla de contenido
Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 24
ningistendur og er hagræddur til að undirbúa
hvítkál.
HANDSTÝRÐUR MATARI, ERGO LOOP
Fæðumatari B með einum innri vegg er
hagræddur fyrir handvirkan snúning vörunnar,
stöflun.
SJÁLFMATARINN:
Er notaður til að skera hnöttótt matvæli eins og
kartöflur og lauk o.s.frv. stöðugt í miklu magni.
4-PÍPU MATARINN
Er notaður til að skera langar vörur eins og
gúrkur í sneiðar, sjá mynd.
HANDVIRKUR ÞRÝSTIMATARI OSTS
Matarhólkur fyrir ost með einum innri vegg
er fínstilltur til að stilla ostblokkir til að búa til
rifinn ost.
SAMSETNING OG LOSUN
MATARHÓLKURINN (Á VIÐ ALLT)
Fellið niður læsihandfangið við samsetningu.
Rennið matarahólkinum inn í hjarafestingu á
vélinni og leggið hann niður á vélina.
Lyftið upp læsihandfanginu.
Fjarlægið fyrst matarana við losun.
Fellið niður læsihandfangið.
Dragið matarahólkinn úr hjarafestingum
vélarinnar.
4-PÍPU MATARINN
Ýtið á stöðvunarhnappinn.
Þegar sett á, setjið fæðumatara A eða B.
Setjið 4-pípu matarann í matarahólkinn og
öxulinn í matarahólksrörið.
Þrýstið niður 4-pípu mataranum og snúið
læsihnappnum rangsælis.
Við losun er læsihnappnum snúið réttsælis og
4-pípu matarinn fjarlægður.
HANDSTÝRÐUR ÞRÝSTIMATARI
Ýtið á stöðvunarhnappinn.
Þegar sett á, setjið fæðumatara A eða B.
Færið handfangið alla leið upp.
Setjið handstýrða þrýstimatarann inn í mata-
rahólksrörið.
Þrýstið niður handstýrða þrýstimataranum og
snúið honum rangsælis.
Við losun er öryggishælnum þrýst niður og
handstýrða þrýstimataranum snúið út réttsælis
til að losa hann.
LOFTKNÚNI MATARINN
Ýtið á stöðvunarhnappinn.
Þegar sett á, setjið fæðumatara A.
Setjið loftknúna þrýstimatarann inn í matara-
hólksrörið.
Þrýstið niður loftknúna þrýstimataranum og
snúið honum rangsælis.
HALLDE • User Instructions
Þrýstið festingu þrýstislöngunnar á stútinn á
loftknúna þrýstimataranum.
Stillið hraðastilli vélarinnar og loftknúna mata-
rans þannig að hann henti því skurðarverkfæri
sem notað er, eins og tilgreint er í leiðbeiningum
undir HRAÐASTILLINGAR.
Setjið loftþjöppuna í gang og stillið hana á 5,5
bör. Meðhöndlið loftþjöppuna í samræmi við
leiðbeiningar framleiðanda.
Kannið loftþrýstinginn á þrýstingsmælinum.
Ákjósanlegur loftþrýstingur er um 5,5 bör en
þrýstingsþörfin getur verið mismunandi. Ef
þrýstimælir sýnir annan loftþrýsting ber að
draga stillinn upp á við og snúa honum þar til
mælirinn sýnir u.þ.b. 5,5 bör, og þrýsta stillinum
svo niður.
Við losun, stöðvið loftþjöppuna og losið síðan
þrýstislönguna af stútnum á loftknúna mata-
ranum.
Þrýstið niður öryggishælnum og snúið loft-
knúna mataranum fram réttsælis og lyftið
honum af.
SJÁLFMATARINN
Ýtið á stöðvunarhnappinn.
Við uppsetningu, útbúið matarahólkinn að
innanverðu með tveimur stýringum.
Setjið sjálfmatarann í miðjan matarahólkinn,
og öxulinn í matarahólksrörið.
Þrýstið niður sjálfmataranum og snúið
læsihnappnum rangsælis.
Við losun er læsihnappnum snúið réttsælis og
sjálfmatarinn fjarlægður.
HANDSTÝRÐI ÞRÝSTIMATARINN, OSTUR
Ýtið á stöðvunarhnappinn.
Þegar sett á, setjið hólk fyrir ostatætara.
Færið handfangið alla leið upp.
Setjið handstýrða þrýstimatara ostatætarans
inn í matarahólksrörið.
Þrýstið niður handstýrða þrýstimatara ostatæ-
tarans og snúið honum rangsælis.
Við losun er öryggishælnum þrýst niður og
handstýrða þrýstimatara ostatætarans snúið
út réttsælis til að losa hann.
UPPSETNING SKURÐAR -
VERKFÆRIS OG BAKKA
Þegar handstýrði, loftknúni matarinn eða
handvirki þrýstimatari osts er notaður, tryggið
að þrýstiplatan sé í efri stöðu og snúið mata-
ranum út til vinstri. Ef sjálfmatarinn eða 4-pípu
matarinn er notaður skal lyfta öxlinum upp úr
festingu hans aftan á vélinni.
Fellið niður læsihandfangið og hallið mata-
ranum aftur.
Ef nota á bakkann þá er frárásarskífan sett á
botn bakkans. Gangið úr skugga um að hnífa-
húsið hafi verið vandlega hreinsað. Bakkinn,
sem inniheldur frárásarskífuna, er síðan settur
utan um öxul hnífahúss vélarinnar. Snúið/ýtið
frárásarskífunni niður í tengingu sína.
Setjið valið skurðarverkfæri á öxulinn og snúið
því þar til það festist á sínum stað.
Þegar notuð er teningsskurðarrist eða frönsku
kartaflna rist: Setjið frárásarskífuna á botn
bakkans sem síðan er settur utan um öxul
hnífahúss vélarinnar. Snúið frárásarskífunni
niður í tengingu sína. Setjið síðan valda rist á
öxulinn og skurðarskífuna þar á eftir og tryggið
að þær festist rétt í stað.
Festið hræritækið þegar sjálfmatarinn er
notaður, lásboltann þegar 4-pípu matarinn
er notaður, eða kjarnahreinsibúnaðinn þegar
handstýrði, osta eða loftknúni matarinn er
notaður, með því að snúa þeim rangsælis með
skrúflykli á miðjuöxulinn á skurðarverkfærinu.
SKURÐARVERKFÆRI
OG BAKKI FJARLÆGÐ
Losið skrúftappann, borkrónuna eða læsi-
boltann réttsælis með lyklinum og fjarlægið
skurðarverkfærið/verkfærin og frárásarskífuna
ásamt bakkanum.
HRAÐASTILLINGAR
Almennt er hraðastillir vélarinnar settur í stöðu „2"
við allan skurð, að undanteknum teningsskurði,
þá á hraðastillir að vera í stöðu „1".
Þegar loftknúni matarinn er notaður eru
hraðastillar vélarinar og matarans stilltir skv.
eftirfarandi töflu.
LM= Loftknúinn matari.
V=Vél
SKURÐARSKÍFA
0,5–1,5 mm: .......................LM = 1. V = 2.
2–3 mm: .............................LM = 2. V = 2.
4–7 mm: .............................LM = 3. V = 2.
8–14 mm: ...........................LM = 3. V = 1.
15–20 mm: .........................LM = 3. V = 1.
HA (HÖRÐ AFKASTAGETA)
SKURÐARSKÍFA
2 mm: .................................LM = 2. V = 2.
4–6 mm:..............................LM = 3. V = 2.
8–20 mm:...........................LM = 3. V = 1.
GÁRUSKURÐARSKÍFA
2–3 mm: .............................LM = 2. V = 2.
4–6 mm: .............................LM = 3. V = 2.
HA (HÖRÐ AFKASTAGETA) GÁRUS-
KURÐARSKÍFA
2–3 mm: .............................LM = 2. V = 2.
4–6 mm:..............................LM = 3. V = 2.
STRIMLARI
2x2–3x3 mm: .....................LM = 2. V = 2.
2x6 mm: .............................LM = 2. V = 2.
4x4–6x6 mm: .....................LM = 3. V = 2.
8x8–10x10 mm: .................LM = 3. V = 1.
47
Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido