Þýðing á leiðbeiningum með Originale
Takk fyrir að velja Originale Volpi vöru
NOTKUNARLEIÐBEININGAR Þessar notkunarleiðbeiningar eru óaðskiljanlegur hluti handúðadælunnar og ætti að geyma á öruggum stað
nálægt búnaðinum. Áður en handúðadælan er notuð eða viðhaldi á henni sinnt, er mælt með að upplýsingar og viðvaranir í þessum
leiðbeiningum séu lesnar vandlega svo búnaðurinn sé notaður á sem réttastan og öruggastan hátt.
VIÐVARANIR Þessi handúðadæla er ætluð til úðunar á vatnslausnum með þéttni undir 1,1 og við hitastig undir 40°C. Mikilvægt er að
fylgja leiðbeiningum frá framleiðanda efnavörunnar sem notuð er í hvívetna. Ekki nota vörur/efni ef framleiðandi hefur ekki séð til þess
að tækniblað fyrir vöruna sé fyrir hendi. Undir engum kringumstæðum skal nota handúðadæluna með leysiefnum, sýrum, eldfimum o g
sprengifimum vökva, ætandi vökva, sótthreinsiefnum og fúaverjandi efnum. Börn og ungmenni yngri en 16 ára, sem og ófrískar konur,
mega ekki nota handúðadæluna. Fólk með andlega fötlun eða skynfærafötlun má aðeins nota hana undir eftirliti ábyrgðaraðila.
Handúðadælan er einungis hönnuð fyrir handvirka notkun. Notið handúðadæluna aðeins til fyrirhugaðra nota. Röng notkun
handúðadælunnar getur haft alvarlegar afleiðingar. Notaðu ávallt hlífðarfatnað og -búnað til að hindra snertingu við skaðlegar eða
eitraðar vörur. Blandaðu lausnina í sér íláti og ekki í handúðaratanknum. Lausnarduft skulu vera algerlega leysanleg og síuð. Gæta skal
að því að anda ekki að sér gufu og smádropum úr lausninni sem úðað er. Í tilvikum snertingar og innöndunar fyrir slysni, hafð u samband
við lækni. Ekki borða, drekka eða reykja við úðun. Ekki blása ofan í stútinn með munninum. Notaðu handúðadæluna á vel loftræstum og
lygnum svæðum. Ekki úða á móti vindi. Haltu handúðadælunni frá börnum og gæludýrum. Ekki úða nálægt vatni með fiskum. Haltu
handúðadælunni frá hitagjöfum og ekki skilja hana eftir í sólarljósi eða frosti í langan tíma. Ekki losa ónotuð efni út í náttúruna. Ekki eiga
við handúðadæluna og íhluti hennar. Ekki nota annan búnað til að mynda þrýsting í handúðadælunni (þjöppur, o.s.frv.). Ekki lo sa um
festingarnar ef þrýstingur er á handúðadælunni. Áður en handúðadælan er tekin í sundur skal losað um allan þrýsting. Ekki mynda
þrýsting í handúðadælunni að óþörfu. Losaðu þrýsting þegar hún er ekki í notkun. Ekki eiga við eða breyta handúðadælunni á no kkurn
hátt. Athugaðu ástand handúðadælunnar fyrir hverja notkun. Ekki skilja handúðadæluna eftir fulla af vökva með þrýstingi.
Handúðadælan skal ávallt standa á láréttu og flötu yfirborði. Þvoðu hendur, andlit og fatnað eftir notkun handúðadælunnar. Vi ðgerðir
skulu eingöngu framkvæmdar af þjónustuaðila eða viðurkenndum sérfræðingum. Notið aðeins ekta varahluti.
TAKMÖRKUN ÁBYRGÐAR Framleiðandinn er ekki ábyrgur fyrir skemmdum af völdum handúðadælunnar ef þær verða vegna þess að
notkunarleiðbeiningum er ekki fylgt, vegna rangrar notkunar, ranglega framkvæmdrar viðgerðar, óekta varahluta, viðgerða sem ekki eru
framkvæmdar af þjónustuaðila eða sérfræðingi með skriflegt umboð frá framleiðandanum sjálfum. Leiðbeiningarnar hér að ofan ei ga
einnig við um íhluti og fylgihluti.
HANDÚÐADÆLAN STANDSETT LENSUNNI KOMIÐ FYRIR Lækkaðu stöngina svo hún vísi í sömu átt og unnið er í við meðferðina. Losaðu
(mynd 8) róna á lensunni með því að snúa henni og þrýsta að handfanginu. Vertu viss um að hún sé rétt í sætinu. Hertu svo rón a með
því að snúa henni réttsælis. Slöngunni komið fyrir: Settu (mynd 8) endann á slöngunni alveg upp á tengið á handfanginu og her tu róna
með því að snúa henni réttsælis. Ef handfangið er úr messing, notaðu skrúfuklemmu. Axlarólunum komið fyrir: tvöfaldaðu axlarólina og
settu samanbrotna endann í gegnum raufina undir handfanginu (mynd 2); festu hana svo með plastflipanum. Settu lausu endana tvo á
krókana (mynd 3) til að stilla lengdina.
AÐ FÆRA INNGJÖFINA FRÁ VINSTRI TIL HÆGRI Handúðadælan er með inngjöfina vinstra megin. Til að færa inngjöfina, losaðu
splitthringinn sem festir stimpilstöngina við inngjöfina (mynd 9-A), losaðu hinn splitthringinn sem festir inngjöfina við hinn enda tanksins
(mynd 9-B). Losaðu inngjöfina frá stimpilstönginni og botni tanksins (mynd 9-C). Togaðu í axlarólarnar (mynd 9-D). Settu inngjöfina í
sætið hinum megin (mynd 10-E Stingdu stimpilstönginni inn í inngjöfina (mynd 10-F). Settu messingskinnuna á endann á inngjöfinni og
festu allt saman með spenntum splitthringnum (mynd 10-G). Settu splitthringinn aftur á stimpilstöngina, inngjafarmegin, með því að
spenna hana (mynd 10-M). Togaðu í axlarólarnar (mynd 10-N).
TANKUR FYLLTUR Taktu lokið af og fylltu tankinn með því að hella vökvanum sem búið var að blanda í gegnum síuna við opið á tanknum.
Vökvinn má aldrei ná upp að síunni. Skrúfaðu lokið aftur á og hertu.
NOTKUNARSKILYRÐI Festu beltiskrókinn á axlarólinni, vogarstangarmegin, við framskotið við botn tanksins (mynd 5). Smeygðu
handleggnum undir ólina (mynd 6) og settu handúðadæluna á öxlina. Settu hina ólina á lausu öxlina og kræktu henni á sama hátt hinum
megin. Með handfangið í lokaðri stöðu, virkjaðu handúðadæluna þar til þú finnur mótstöðu. Þá úðarðu með því að taka um handfa ngið
og pumpa reglulega. Stilltu bununa eftir tegund verks með því að snúa endanum á úðadælunni. Veldu úðunarmynstur (mynd 7).
EFTIR NOTKUN Helltu þeim vökva sem eftir er í ílát og skolaðu vel innan úr tanknum og slöngunni með hreinu vatni, sprautaðu hreinu
vatni í gegnum lensustútinn. Athugaðu hvort síurnar séu ekki hreinar og tankurinn tómur. Lokaðu stútnum á handfanginu og leggðu
handúðadæluna frá þér á hreinan, þurran og sólar- og frostlausan stað sem börn komast ekki að.
VIÐHALD Ganga skal úr skugga um að þéttingar, lokur, dælubúnaður og íhlutir séu í lagi, hreinir og smurðir. Ef einhver þessara íhluta
brotnar eða harðnar, þá getur það hindrað rétta virkni handúðadælunnar. Gættu að því að setja íhlutina rétt saman. Ef úðinn d reifist
illa, hreinsaðu endann á úðaranum með hreinu vatni.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR Hámarksrúmtak: 12 lítrar - 15 lítrar. Hámarkshiti við notkun: 1°C til 40°C. Hámarksþrýstingur við notkun: 3
bör
ÁBYRGÐ 24 mánaða ábyrgð fyrir einkaaðila og 12 mánaða ábyrgð fyrir faglega notendur. Ábyrgðin nær til hvers kyns galla sem rekja má
til slælegra vinnubragða eða lélegs efniviðs. Vörunni er skipt eða við hana gert án endurgjalds, að ákvörðun framleiðanda, að eins ef hún
hefur verið notuð á tilhlýðilegan hátt í samræmi við notkunarleiðbeiningarnar og ef ekki hefur verið átt við h ana. Vörunni verður að
fylgja sönnun um kaup. Ábyrgðin nær ekki til vinnu, bóta fyrir atvinnutjón eða ferðakostnaðar. Ábyrgðin nær ekki til hluta se m hætt er
við sliti: þéttinga, handfangs og íhluta þeirra. Viðhaldi sem sinnt er á ábyrgðartímanum framlengi r í engum tilvikum ábyrgðartímann.
Ábyrgðin gildir aðeins fyrir vörur sem hafa verið skráðar í gegnum vefsíðuna innan 30 daga frá kaupdegi. Virkaðu ábyrgðina á nýja tækinu
þínu í gegnum vefsíðu okkar:
http://www.volpioriginale.it/garanzia/
Kaupandinn verður einnig að geyma afrit af söluskjölinu (kvittun, reikning) og af ábyrgðarskráningunni: afrit af þessum skjölum skal
afhent söluaðila eða viðurkenndri þjónustuveri ásamt vélinni sem á að gera við. Ef þessi skjöl eru ekki fyrir hendi verður vé lin í öllu falli
talin utan ábyrgðar.
Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast farið inn á
IS Handknúinn handúðadæla UNI 12-15
www.volpioriginale.it
Pag. 21 di 48