Vagninum lagt, hann brotinn saman og settur í geymslu
• Setjið vagninn alltaf í bremsu þegar hann er kyrrstæður.
• Vagninn á alltaf að vera í bremsu þegar barninu er lyft í og úr
vagninum.
• Leggið vagninum aldrei í brekku eða á ósléttum fleti.
• Takið barnið alltaf úr vagninum áður en hann er brotinn saman.
• Gætið þess að börn séu í öruggri fjarlægð frá hreyfanlegum
hlutum þegar stillingum vagnsins er breytt.
• Þegar vagninn er ekki í notkun skal geyma hann þar sem börn
ná ekki til.
• Dekkin geta skilið eftir bletti á PVC-gólfdúkum eða öðru
plastefni. Setjið alltaf hlífar undir hjólin þegar vagninn er látinn
standa á viðkvæmum flötum.
Umhirða, viðhald og varahlutir
• Fylgið leiðbeiningum um umhirðu og viðhald.
• Ekki má nota vöruna ef einhver hluti hennar er í ólagi
skemmdur.
• Gangið úr skugga um að búið sé að festa alla rennilása og
smellur tryggilega fyrir notkun.
• Notið eingöngu upprunalega varahluti frá framleiðanda eða
varahluti sem framleiðandi viðurkennir.
• Ekki má nota fylgihluti eða varahluti sem framleiðandi
viðurkennir ekki.
• Loftfylltu dekkin kunna að innihalda fjölarómatísk vetniskolefni
í skömmtuðu magni. Farið varlega með dekkin og látið
eingöngu fagmenn sjá um að gera við eða skipta um dekkin og
slöngur í þeim. Leyfið börnum aldrei að leika sér með vagninn
eða dekkin.
Almennar upplýsingar
Öryggisleiðbeiningarnar og tilmælin í þessum leiðarvísi geta ekki
náð utan um öll möguleg skilyrði og ófyrirsjáanlegar aðstæður
sem geta komið upp. Tekið skal fram að almennt hyggjuvit, varúð
og varfærni eru þættir sem geta ekki verið innbyggðir í vöru.
Þessir þættir eru á ábyrgð þess eða þeirra sem sjá um og nota
barnavagninn. Það er mikilvægt að allir sem nota barnavagninn og
fylgihlutina skilji leiðbeiningarnar og fari eftir þeim. Allir sem nota
barnavagninn verða að fá leiðbeiningar um notkun hans, jafnvel
þótt viðkomandi muni aðeins nota vagninn í stuttan tíma. Sjá
verður til þess að allir notendur búi yfir nauðsynlegri líkamsgetu og
reynslu til þess að geta notað vöruna.
266
eða
NXT SELECT V1.2