• Notið aldrei beitt verkfæri við þrif eða önnur
IS KLAR DEC-2014 / AAL
verkfæri sem ekki eru ætluð fyrir þrif.
• Notið ekki fægiefni.
FORÐIST: Notið ekki þvottasvampa með
ræstipúðum (t.d. Scotch-Brite™) nema það sé
algjörlega nauðsynlegt. Það ýfir yfirborðsfleti
svo þeir hrinda síður vatni frá sér.
RÁÐ FYRIR UMHIRÐU:
• Þrífið vélina strax eftir notkun.
• Þurrkið vélina strax eftir þrif til að forðast
oxun og upplitun á yfirborðsflötum.
UPPLÝSINGAR: Ef vélin er látin vera rök í
lengri tíma koma blettir á hana. Blettirnir eru
skaðlausir en hafa slæm áhrif á útlit vélarinnar.
Grænmeti og ávextir innihalda sýru. Það hefur
áhrif á málminn, eftir því hvaða vörur eru unnar,
eftir mismunandi langan tíma. Því er mikilvægt
að þrífa vélina strax eftir vinnslu á söltum og
súrum vörum.
BILANALEIT
Til að koma í veg fyrir tjón á vélinni er RG-50
útbúin hitastýrðri mótorvörn sem slekkur
sjálfkrafa á vélinni ef hitastig hennar verður of
hátt. Hitastýrða mótorvörnin er með sjálfvirkri
endurstillingu, sem þýðir að hægt er að gang-
setja vélina aftur þegar hún hefur kólnað, sem
tekur yfirleitt 10-30 mínútur.
BILUN: Vélin fer ekki í gang eða stöðvast
meðan hún er í gangi og ekki er hægt að
endurræsa hana.
LAUSN: Gangið úr skugga um að klóin sitji rétt
í innstungunni eða kveikið á straumrofanum.
Gangið úr skugga um að öryggi í töfluskápnum
séu í lagi og að ampertala þeirra sé rétt. Gangið
úr skugga um að grænmetisskurðarbúnaðurinn
sé rétt festur og að búið sé að draga niður
handfangið á honum. Bíðið í allt að 30 mínútur
og reynið svo að gangsetja vélina aftur. Fáið
löggiltan fagmann til að gera við hana.
BILUN: Lítil vinnslugeta eða ófullnægjandi
árangur.
LAUSN: Veljið rétta skurðarverkfærið Notið
ávallt frárásarskífuna. Gangið úr skugga um
að hnífarnir og skurðarverkfærin séu heil og
bíti vel. Þrýstið matnum niður af minna afli.
BILUN: Ekki tekst að fjarlægja skurðarverkfæri.
LAUSN: Notið ávallt frárásarskífuna. Notið
þykkan leðurhanska eða öðruvísi hanska sem
hnífar skurðarverkfærisins skera ekki í gegnum
og fjarlægið skurðarverkfærið með því að snúa
því réttsælis.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
UM HALLDE RG - 50
VINNSLUGETA OG MAGN: Vinnur allt að 2
kílóum á mínútu. Rúmmál matara: 0,9 lítrar.
Þvermál matarapípunnar: 53 mm.
VÉLARHÚS: Mótor: 1,0 W, 120 V, einfasa, 60
Hz. 220-240 V, einfasa, 50/60 Hz. Hitastýrð
mótorvörn. Aflyfirfærsla: Viðhaldsfrí tannhjóls-
reim. Öryggiskerfi: Tveir öryggisrofar: Varnar-
HALLDE • User Instructions
flokkur: IP34. Rafmagnsinnstunga: Jarðtengd,
einfasa, 10A. Öryggi í töfluskáp á staðnum:
10 A, treg. Hljóðvist: LpA (EN31201): 76 dBA.
Segulsvið: Minna en 15 míkrótesla. Hraði: Einn
hraði. Um það bil 500 sn./mín.
SKURÐARVERKFÆRI: Þvermál skurðarverk-
færanna er 185 mm.
NETTÓÞYNGD: Vélarhús: 8,6 kíló. Matara-
haus: 1 kíló. Skurðarverkfæri: u.þ.b. 0,3 kíló
að meðaltali.
STAÐLAR: NSF-STAÐALL 8, sjá samræmi-
syfirlýsingu.
29