HERKULES 43.014.33 Manual De Instrucciones Original página 110

Ocultar thumbs Ver también para 43.014.33:
Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 28
Anleitung_STR_920_L_SPK7:_
IS
11. Umhirða
Fjarlægið reglulega ryk og óhreinindi af vélinni.
Best er að hreinsa vélina með tusku eða pensli.
Allir hreyfanlegir hlutir vélarinnar ættu að vera
festir og smurður með reglulegu millibili.
Notið ekki leysi efni til hreinsunar.
Pönnuna (3) og kælivatnsdæluna (13) ætti að
hreinsa reglulega. Annars er ekki hægt að
ábyrgjast kælingu á skurðarskífunni (2). Til að
tæma pönnuna, fjarlægið gúmmítappann (36) og
látið vatnið renna í ílát (mynd 15).
12. Pöntun á varahlutum
Þegar að varahlutir eru pantaðir ætti tilheyrandi að
koma fram:
Gerð vélar
Vörunúmer vélar
Tilgreiningarnúmer vélar
Varahlutanúmer þess varahlutar sem á að panta
Verð og upplýsingar er að finna undir: www.isc-
gmbh.info
13. Geymsla
Geymið tækið og aukahluti þess á dimmum, þurrum
og frostlausum stað þar sem að börn ná ekki til.
Kjörhitastig geymslu er á milli 5 og 30 ˚C. Geymið
rafmagnsverkfæri í upprunalegum umbúðum.
14. Förgun og endurnýting
Tækið er í umbúðum til að koma í veg fyrir að það
verði fyrir hnjaski við flutninga. Umbúðirnar eru úr
endurvinnanlegu efni og því má endurnýta þær.
Tækið og fylgihlutir þess eru úr mismunandi efni, t.d.
málmi og plasti. Fara skal með gallaða hluti á
viðeigandi söfnunarstaði. Leitið upplýsinga hjá
söluaðila eða stofnunum á hverjum stað!
15. Förgun rafhlaða
Rafhlöður innihalda efni sem eru skaðleg umhverfinu.
Fleygið rafhlöðum því ekki með heimilissorpi og kastið
þeim ekki í eld eða vatn. Rafhlöðum skal safna,
endurvinna eða farga með umhverfisvænum hætti.
Sendið notaðar rafhlöður til iSC GmbH, Eschenstraße
6, D-94405 Landau, Þýskalandi. Þar mun
framleiðandi sjá til þess að förgun fari fram með
viðeigandi hætti.
110
07.02.2011
8:24 Uhr
Seite 110
loading

Este manual también es adecuado para:

Str 920 l