3M DBI-SALA 2200094 Manual De Instrucciones Para El Usuario página 128

Tabla de contenido
Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 60
3.
Ýtið á hnappinn „alarm bypass" (fara fram hjá viðvörun) (A) og snúið stönginni (B) í stöðuna „attach" (festa).
Ýtið púðunum niður með afli meðan innsigli er náð, þannig er öllu umframlofti þrýst burt undan púðunum. Ýtið
áfram niður þar til lofttæmismælirinn (C) gefur til kynna að fullnægjandi lofttæmi hafi verið náð. Þetta getur aukið
endingu þrýstiloftshylkisins.
4.
Að þessu loknu skal fylgjast með nálinni á lofttæmismælinum í um það bil 10 sekúndur. Nálin ætti ekki að hreyfast,
sem gefur til kynna að fullnægjandi lofttæmisinnsigli og festingu hafi verið náð. Ef nálin færist niður skal losa
eininguna með því að snúa stönginni í losunarstöðu. Komið lofttæmisfestingunni fyrir á ný og endurtakið skref 1–4.
5.
Festið persónulegt fallstöðvunarkerfi við Lofttæmisfesting.
Viðbótarlofttæmisfesting fest: Sjá mynd 9. Fylgið eftirfarandi leiðbeiningum þegar festa á viðbótar-Lofttæmisfesting
með aðal-Lofttæmisfesting:
1.
Festið viðbótarslönguna (E) við lofttæmingartengið (C) á púða aðallofttæmisfestingarinnar (A). Festið síðan
viðbótarslönguna (E) við lofttæmingartengið (D) á púða viðbótarlofttæmisfestingarinnar (B).
2.
Komið báðum Lofttæmisfesting púðunum fyrir á burðarvirki sem uppfyllir ofangreind skilyrði, sem og þau skilyrði
sem fram koma í töflu 1.
3.
Ýtið á hnappinn „alarm bypass" (fara fram hjá viðvörun) (A) á viðbótarpúðanum og snúið stönginni (B) í stöðuna
„attach" (festa). Ýtið púðunum niður með afli meðan innsigli er náð, þannig er öllu umframlofti þrýst burt undan
púðunum. Ýtið áfram niður þar til lofttæmismælirinn (C) gefur til kynna að fullnægjandi lofttæmi hafi verið náð.
4.
Að þessu loknu skal fylgjast með nálinni á lofttæmismælinum í um það bil 10 sekúndur. Nálin ætti ekki að hreyfast,
sem gefur til kynna að fullnægjandi lofttæmisinnsigli og festingu hafi verið náð. Ef nálin færist niður skal losa
eininguna með því að snúa stönginni í losunarstöðu. Komið lofttæmisfestingunni fyrir á ný og endurtakið skref 1–4.
5.
Festið persónulegt fallstöðvunarkerfi við Lofttæmisfesting.
4.0
NOTKUN
4.1
FYRIR SÉRHVERJA NOTKUN: Staðfestu að vinnusvæði þitt og persónulegt fallstöðvunarkerfi (PFAS) uppfylli öll viðmið
í kafla 2 og að formleg björgunaráætlun sé til staðar. SkoðaðuLofttæmisfesting í samræmi við skoðunarpunkta „notanda"
sem skilgreindir eru í „Eftirlits- og viðhaldsskrá" (Tafla 2). Ef skoðun leiðir í ljós óöruggt eða gallað ástand má ekki nota
kerfið. Taktu kerfið úr notkun og fargaðu því eða hafðu samband við 3M varðandi endurnýjun eða viðgerð.
4.2
TENGINGAR SEM STÖÐVA FALL: Lofttæmisfesting er notað með fallvarnarbelti og dragreipi sem tekur til sín högg eða
með sjálfsinndraganlegum búnaði (SRD). Tengið dragreipið eða SRD-búnaðinn á milli D-hringsins á Lofttæmisfesting og
D-hringsins sem er aftan á fallvarnarbeltinu eins og segir í leiðbeiningum sem fylgja dragreipinu eða SRD-búnaðinum.
4.3
VIÐ NOTKUN: Ef hljóðviðvörun heyrist við notkun hefur orðið breyting á loftflæði eða lofttæmisþrýstingi. Skoðið
Lofttæmisfesting. Ef nálin á lofttæmismælinum er á græna svæðinu er lofttæming kerfisins örugg og verður það áfram
meðan verið er að kanna hvað veldur truflun á loftflæði og lagfæra ástandið.
Þó svo að gott lofttæmisinnsigli tryggi örugga þéttingu í yfir 20 mínútur við vinnu skal fylgjast með nálinni á
lofttæmismælinum á tveggja mínútna fresti meðan truflun stendur yfir, til að tryggja öruggar vinnuaðstæður. Ef nálin á
lofttæmismælinum er á einhverjum tímapunkti undir græna svæðinu skal aftengjast Lofttæmisfesting eins fljótt og öruggt
er og skoða kerfið, annaðhvort þegar ekki þarf að vinna í hæð eða nota annan fallvarnarbúnað meðan skoðun fer fram.
5.0
EFTIRLIT
5.1
EFTIRLITSTÍÐNI: Skoðun Lofttæmisfesting þarf að fara fram samkvæmt tíðni sem skilgreind er í kafla 1 og í
endurvottunarferlinu sem lýst er í kafla 5.4. Eftirlitsferli er lýst í „Eftirlits- og viðhaldsskrá" (Tafla 2). Skoðið alla aðra hluta
fallstöðvunarkerfisins í samræmi við tíðni og ferli sem skilgreint er í leiðbeiningum framleiðanda.
;
Mælt er með því að Lofttæmisfesting sé merktur með dagsetningu næstu skoðunar eftir að hverri skoðun
á búnaðinum er lokið.
5.2
GALLAR: Ef eftirlit leiðir í ljós óöruggt eða gallað ástand skal taka Lofttæmisfesting tafarlaust úr notkun og hafa samband
við 3M varðandi endurnýjun eða viðgerðir. Ekki reyna að gera við fallstöðvunarkerfið.
;
Samþykktar viðgerðir: Einungis 3M eða aðilar sem hafa skriflegt umboð frá fyrirtækinu mega gera við þennan
búnað.
5.3
LÍFTÍMI VÖRU: Virknistími fallstöðvunarkerfisins ræðst af vinnuaðstæðum og viðhaldi. Nota má vöruna áfram svo lengi
sem hún stenst skoðunarviðmið.
5.4
ENDURVOTTUN Tæknimaður vottaður af 3M Fall Protection skal skoða Lofttæmisfesting og endurvotta búnaðinn árlega,
eða samkvæmt skriflegu samkomulagi við 3M Fall Protection.
;
Krafa um skoðun: Skrá verður allar endurvottanir á merkimiðann á púðanum með dagsetningu.
6.0
VIÐHALD, ÞJÓNUSTA OG GEYMSLA
6.1
HREINSUN: Hreinsið málmhluta Lofttæmisfesting með reglubundnum hætti með mjúkum bursta, volgu vatni og mildri
sápulausn. Tryggið að hlutarnir séu skolaðir vandlega með hreinu vatni.
6.2
ÞJÓNUSTA: Aðeins 3M eða aðilar sem hafa skriflegt umboð frá 3M mega gera við þennan búnað. Ef Lofttæmisfesting
hefur orðið fyrir höggi eða eftirlit leiðir í ljós óöruggt eða gallað ástand skal taka kerfið úr notkun og hafa samband við 3M
varðandi endurnýjun eða viðgerðir.
128
Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido