3M PELTOR SportTac Manual De Instrucciones página 86

Ocultar thumbs Ver también para PELTOR SportTac:
Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 46
3M™ PELTOR™ SportTac Heyrnartól
MT16H210F**
**Sýnir aðra útgáfu af vörunni
1.
INNGANGUR
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja
3M™ PELTOR™ heyrnartól sem
samskiptalausnir!
1.1. ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum heyrnartólum er ætlað að veita
vernd gegn skyndilegum hávaða sem fer
yfir hættumörk og háværum hljóðum
samtímis og notandinn heyrir umhverfishljóð
um ytri hljóðnema og hlustar á
hljóðflutningstæki. Gert er ráð fyrir því að
allir notendur lesi og skilji meðfylgjandi
leiðbeiningar notenda ásamt því að kunna
að nota tækið.
2.
ÖRYGGI
2.1. MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir
öllum öryggisupplýsingum í leiðbeiningum
þessum og farðu eftir þeim áður en þú tekur
heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær
síðar. Hafðu samband við tæknideild 3M
(samskiptaupplýsingar er að finna á öftustu
síðu).
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni
vegna hávaða og annarra háværra hljóða.
Séu heyrnarhlífar notaðar rangt eða notkun
þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í
hættulegum hávaða, getur það leitt til
heyrnarskerðingar eða -taps. Ræddu við
verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar
notenda eða hafðu samband við
Tæknideild 3M til að kynna þér rétta
notkun. Ef þér finnst eins og þú sért með
bómull í eyrunum eða heyrir són eða suð í
eða eftir hávaða (byssuskot meðtalin), eða
ef þú hefur einhverja aðra ástæðu til að ætla
að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu
yfirgefa hávaðasama umhverfið
umsvifalaust og hafa samband við lækni og/
eða verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum,
gæti það leitt til alvarlegs líkamstjóns
eða dauða:
a. Sé hlustað á tónlist eða önnur
hljóðskilaboð getur það dregið úr athygli á
umhverfinu og getunni til þess að heyra
viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu
hljóðið eins lágt stillt og mögulegt er að
sætta sig við.
b. Dragðu úr þeirri hættu sem getur fylgt
sprengingu með því að nota ekki ekki
eiginöruggan búnað eða fylgihluti í
mögulega sprengifimu umhverfi.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum,
gæti það dregið úr verndargetu
heyrnarhlífanna og jafnvel leitt til
heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að hver og
einn notandi felli allar heyrnarhlífar vandlega
að sér. Rannsóknir benda til þess að
stundum sé hljóðeinangrun minni en
hljóðdeyfingargildi á umbúðum gefa til kynna
vegna frávika við að fella hlífarnar að hverjum
notanda fyrir sig og færni viðkomandi og
hvatningu til þess. Kynntu þér viðeigandi
reglur og leiðbeiningar á merkimiða um
aðlögun suðhlutfalls/falla til merkis. Séu
viðeigandi reglur ekki fyrir hendi er mælt með
því að lækka suðhlutfall/föll til merkis til að
geta betur metið dæmigerða vernd.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu
valdar, þeim komið fyrir, þær aðfelldar og
haldið við. Sé búnaðinum komið fyrir á
ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu hans
til þess að deyfa hávaða. Kynntu þér
meðfylgjandi upplýsingar um rétta notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja
notkun. Séu þær skemmdar, veldu þér
óskaddaðar heyrnarhlífar eða forðastu
hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari
persónuhlífum (t.d. öryggisgleraugum,
öndunargrímum o.s.frv.), ber að velja
sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til
þess að þau hafi sem minnst áhrif á
heyrnarhlífapúðana. Fjarlægðu allt annað
(t.d. hár, húfur, skartgripi, heyrnartól,
hreinlætishlífar o.s.frv.) sem gæti dregið úr
einangrunargildi eyrnahlífapúðanna og
verndargildi hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun
höfuðspöng eða hálsspöng og gættu þess
að hún sé nógu öflug til þess að halda
heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f.
Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar
geta orðið lélegir með tímanum og þá þarf
að skoða með reglulegu millibili í leit að t.d.
sprungum og hljóðleka. Séu
heyrnarhlífapúðarnir notaðir reglulega, ber
að skipta um þá og frauðhringina að
minnsta kosti tvisvar á ári til þess að
viðhalda fullnægjandi vernd, hreinlæti og
þægindum.
g. Frálag rafeindarásar í þessum
heyrnarhlífum getur farið fram yfir dagleg
hávaðamörk. Hafðu hljóðið eins lágt stillt
og mögulegt er að sætta sig við.
Hljóðstyrkur frá hvaða tengdum ytri
hljóðgjafa sem er, svo sem talstöðvum og
símum, getur farið yfir örugg hávaðamörk
svo notandinn verður að takmarka þau á
viðeigandi hátt.
IS
80
loading