■
■
Tryggið að eingöngu þeir sem lesið hafa
notkunarleiðbeiningarnar geti notað
hleðslustöðina.
2.3 Öryggisupplýsingar varðandi uppsetningu
■
■
Faglærður rafvirki verður að sjá um að setja
hleðslustöðina upp og tengja hana við rafmagn.
■
■
Aðeins má nota meðfylgjandi uppsetningarbúnað.
■
■
Öryggishönnun Webasto Pure byggist á því að
jarðtenging veitukerfis sé ávallt tryggð. Faglærði
rafvirkinn skal ganga úr skugga um að svo sé
þegar búnaðurinn er settur upp.
■
■
Ekki má setja hleðslustöðina upp í umhverfi þar
sem sprengihætta er fyrir hendi.
■
■
Setja skal hleðslustöðina upp með þeim hætti að
hleðslusnúran komi ekki í veg fyrir að hægt sé að
komast leiðar sinnar.
■
■
Ekki má setja hleðslustöðina upp í umhverfi þar
sem ammoníak eða loft sem inniheldur ammoníak
er fyrir hendi.
■
■
Ekki má setja hleðslustöðina upp á stöðum
þar sem hætta er á að hlutir falli á hana (t.d.
kaplatromlur eða dekk) og hún verði fyrir
skemmdum.
■
■
Hleðslustöðin hentar til notkunar innandyra, t.d.
í bílskúrum, og á skjólgóðum stöðum utandyra,
t.d. í bílskýlum. Ekki má setja hleðslustöðina
upp nálægt búnaði sem sprautar vatni, t.d.
bílaþvottastöðvum, háþrýstidælum eða
garðslöngum.
■
■
Verja skal hleðslustöðina fyrir regni til að koma
í veg fyrir skemmdir af völdum frosts, hagls eða
álíka.
■
■
Verjið hleðslustöðina fyrir beinu sólarljósi. Hátt
hitastig getur minnkað hleðslustrauminn eða eftir
atvikum stöðvað hleðsluna.
■
■
Velja skal uppsetningarstað fyrir hleðslustöðina
með það í huga að ekki sé hætta á að
farartækjum sé ekið á hana í ógáti. Ef ekki
er hægt að útiloka skemmdir verður að gera
viðeigandi varúðarráðstafanir.
22
■
■
Ef hleðslustöðin verður fyrir skemmdum við
uppsetningu verður að taka hana úr notkun.
Skipta verður búnaðinum út.
2.4 Öryggisupplýsingar varðandi tengingu við
rafmagn
■
■
Virðið gildandi lagakröfur um raflagnir, eldvarnir,
öryggisreglur og flóttaleiðir á fyrirhuguðum
uppsetningarstað.
■
■
Hver hleðslustöð verður að vera með sinn
eigin lekastraumsrofa. Lekastraumsrofinn skal
að minnsta kosti vera af gerð A (30 mA AC
útleysingarstraumur, sjá einnig kafla 8.1).
■
■
Áður en hleðslustöðin er tengd við rafmagn
skal ganga úr skugga um að ekki sé spenna á
rafmagnstengingum.
■
■
Þegar hleðslustöðin er sett í gang í fyrsta sinn skal
ekki tengja bíl við hana strax.
■
■
Gangið úr skugga um að notaður sé réttur
rafstrengur fyrir tengingu við veitukerfi rafmagns.
■
■
Skiljið hleðslustöðina ekki eftir án eftirlits með
uppsetningarhlífina opna.
■
■
Ekki má setja hleðslustöðina upp án
uppsetningargrindar.
■
■
Þegar stillingu DIP-rofa er breytt verður að vera
slökkt á búnaðinum.
■
■
Gætið að mögulegri tilkynningaskyldu gagnvart
rafveitu.
2.5 Öryggisupplýsingar varðandi fyrstu
gangsetningu
■
■
Faglærður rafvirki verður að sjá um að taka
hleðslustöðina í notkun.
■
■
Áður en hleðslustöðin er tekin í notkun skal
faglærður rafvirki ganga úr skugga um að hún sé
rétt tengd.
■
■
Áður en hleðslustöðin er tekin í notkun skal
athuga með sýnilega ágalla eða skemmdir á
hleðslusnúrunni, hleðsluklónni og hleðslustöðinni.
Ef skemmdir eru á hleðslustöðinni, hleðslusnúrunni
eða hleðsluklónni má ekki taka búnaðinn í notkun.
3 Lýsing á búnaðinum
Í þessum notkunar- og uppsetningarleiðbeiningum
er fjallað um Webasto Pure-hleðslustöðina. Nákvæm
lýsing á búnaðinum kemur fram á upplýsingaplötu
hleðslustöðvarinnar (sjá dæmi á mynd 01).
4 Notkun
4.1 Yfirlit yfir Webasto Pure
Sjá mynd 11
Skýringartexti:
1. LED-ljós
2. Snertirofi
3. Festing fyrir hleðslusnúru
4. Festing fyrir hleðslukló
5. Lykilrofi, aðgengilegur að neðan
6. Uppsetningarhlíf
Webasto Pure