Webasto Pure Instrucciones De Uso página 24

Ocultar thumbs Ver también para Pure:
Tabla de contenido
Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 1
1
Almennt
1.1 Tilgangur skjalsins
Þessar notkunar- og uppsetningarleiðbeiningar eru hluti af
vörunni og hafa að geyma upplýsingar fyrir notendur um
örugga notkun sem og upplýsingar fyrir faglærða rafvirkja
um örugga uppsetningu Webasto Pure-hleðslustöðvarinnar.
1.2 Notkun þessa skjals
Lesið notkunar- og uppsetningarleiðbeiningarnar áður
X
X
en Webasto Pure-hleðslustöðin er sett upp og tekin í
notkun.
Geymið þessar leiðbeiningar þar sem ávallt er hægt að
X
X
nálgast þær.
Afhenda skal síðari eigendum eða notendum
X
X
hleðslustöðvarinnar þessar leiðbeiningar.
1.3 Fyrirhuguð notkun
Webasto Pure-hleðslustöðin er ætluð til að hlaða rafknúin
farartæki samkvæmt IEC 61851-1, hleðsluaðferð 3. Með
þessari hleðsluaðferð tryggir hleðslustöðin eftirfarandi:
Spennu er ekki hleypt á fyrr en bíllinn hefur verið
tengdur rétt við hleðslustöðina.
Hámarksstraumstyrkur hefur verið borinn saman.
AC/DC-breytir er í bílnum.
1.4 Notkun tákna og áherslumerkinga
HÆTTA
Hætta með háu áhættustigi sem leiðir til banaslysa
eða alvarlegra meiðsla ef ekki eru gerðar viðeigandi
ráðstafanir.
VIÐVÖRUN
Hætta með áhættustigi í meðallagi sem getur leitt til
minniháttar eða óverulegra meiðsla ef ekki eru gerðar
viðeigandi ráðstafanir.
VARÚÐ
Hætta með lágu áhættustigi sem leiðir til minni háttar
eða óverulegra meiðsla ef ekki eru gerðar viðeigandi
ráðstafanir.
Vekur athygli á tæknilegum eiginleika eða hættu á því
að varan verði fyrir skemmdum.
Webasto Pure
Vísar í önnur skjöl
Lýsing á skilyrði
Lýsing á aðgerð
1.5 Ábyrgð vegna galla og skaðsemisábyrgð
Webasto undanskilur sig allri ábyrgð vegna ágalla og
skemmda sem rekja má til þess að ekki var farið eftir
notkunar- og uppsetningarleiðbeiningum. Þessi útilokun
ábyrgðar gildir einkum um eftirfarandi:
Röng notkun.
Ófaglærður rafiðnaðarmaður sá um að setja búnaðinn
upp og taka hann í notkun.
Viðgerðir fóru ekki fram á Webasto-þjónustuverkstæði.
Ekki voru notaðir upprunalegir varahlutir frá
framleiðanda.
Gerðar voru breytingar á tækinu án samþykkis Webasto.
2 Öryggi
2.1 Almennt
Notendur hleðslustöðvarinnar verða að hafa náð 18 ára
aldri.
Þróun, framleiðsla, prófanir og gögn
Webasto Pure-hleðslustöðvarinnar samræmast viðeigandi
reglum um öryggi og umhverfisvernd. Aðeins má nota
tækið þegar það er í fullkomnu lagi.
Ef bilanir koma upp sem stefna öryggi fólks og tækisins í
hættu skal tafarlaust láta faglærðan rafvirkja gera við þær
samkvæmt gildandi reglum í hverju landi.
Merkjagjöfin í bílnum kann að vera frábrugðin því
sem fram kemur í þessari lýsingu. Lesið ávallt og
farið eftir því sem fram kemur í notendahandbók
framleiðanda bílsins.
2.2 Almennar öryggisupplýsingar
Hættulega há spenna í innanverðum búnaðinum.
Athugið hvort sýnilegar skemmdir eru á
hleðslustöðinni áður en hún er notuð. Ekki má
nota hleðslustöðina ef um skemmdir er að ræða.
Faglærður rafvirki verður að sjá um að setja
hleðslustöðina upp, tengja hana við rafmagn og
taka hana í notkun.
Ekki má taka hlífina yfir uppsetningarsvæðinu af
meðan á notkun stendur.
Ekki má fjarlægja merkingar, viðvörunartákn eða
upplýsingaplötu af hleðslustöðinni.
Faglærður rafvirki verður að sjá um að skipta um
hleðslusnúruna samkvæmt leiðbeiningum.
Það er með öllu óheimilt að tengja önnur tæki við
hleðslustöðina.
Þegar hleðslusnúran er ekki í notkun skal geyma
hana í þar til ætlaðri festingu og festa hleðsluklóna
í hleðslustöðinni. Vefjið hleðslusnúrunni lauslega
utan um hleðslustöðina þannig að hún snerti ekki
gólfið.
Gætið þess að ekki sé hætta á að ekið sé yfir
hleðslusnúruna og hleðsluklóna, þær klemmist
eða verði fyrir öðru hnjaski.
Ef hleðslustöðin, hleðslusnúran eða hleðsluklóin
verða fyrir skemmdum skal tafarlaust gera
þjónustuaðila viðvart. Ekki má halda notkun
hleðslustöðvarinnar áfram.
Ekki má sitja í bílnum meðan á hleðslu stendur.
Verjið hleðslusnúruna og -klóna fyrir ytri
hitagjöfum, vatni, óhreinindum og efnum.
Ekki má framlengja hleðslusnúruna með
framlengingarsnúru eða millistykki til þess að
tengja hana við bílinn.
Halda verður um hleðsluklóna þegar hleðslusnúran
er tekin úr sambandi.
Alls ekki má hreinsa hleðslustöðina með
háþrýstidælu eða álíka tæki.
Taka verður strauminn af áður en tengin í
hleðsluklónni eru þrifin.
21
Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido