Fyrirhuguð Notkun; Upplýsingar Um Uppsetningu Og Notkun - ABL Wallbox eMH3 Instrucciones De Uso

Ocultar thumbs Ver también para Wallbox eMH3:
Tabla de contenido
Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 31
158
|
Wallbox eMH3 – Fyrirhuguð notkun
Fyrirhuguð notkun
Wallbox eMH3 er tilvalin lausn þegar setja á upp hóp hleðslustöðva á bílastæðum fyrirtækja eða hótela.
Hún er fáanleg með einum („single") eða tveimur hleðslustöðum („twin") og í sjálfstæðri („standalone")
eða „master/slave"-útfærslu auk þess sem hægt er að velja á milli útfærslu með hleðslusnúru eða
hleðslutengli. Wallbox eMH3 er einnig fáanleg í pakka með bakvinnslulausnunum frá reev sem einfalda
umsjón með hleðslum og kostnaðarútreikning til muna.
ATHUGIÐ
Stillingamöguleikar
Frekari upplýsingar um stillingu og notkun Wallbox eMH3 í sjálfstæðri útfærslu, í hópuppsetningu og
með bakvinnslu er að finna í ítarlegu uppsetningarhandbókinni (sjá „Tæknilegar viðbótarupplýsingar"
á bls. 166).
Upplýsingar um uppsetningu og notkun
Í þessu skjali er fjallað um helstu atriði sem tengjast notkun Wallbox eMH3.
Faglærður rafvirki skal sjá um að setja Wallbox eMH3 upp og taka hana í notkun: Fjallað er um
uppsetningu hleðslustöðvarinnar í sérstakri uppsetningarhandbók sem hægt er að nálgast sem PDF-
skjal á vefsíðunni www.ablmobility.de (sjá einnig „Tæknilegar viðbótarupplýsingar" á bls. 166).
Notendahandbók (þetta skjal)
Tæknilegar viðbótarupplýsingar
ƒ Upplýsingablöð
ƒ Uppsetningarhandbók
Öryggisupplýsingar
Hætta
Hætta vegna rafspennu
Sé ekki farið eftir öryggisupplýsingunum í þessari handbók eða þær virtar að vettugi, getur það leitt til
raflosts, eldsvoða, alvarlegs líkamstjóns og/eða dauða.
ƒ Lesið allar öryggisupplýsingar vandlega.
ƒ Fylgið ávallt öllum öryggisupplýsingum!
Gætið að eftirfarandi atriðum:
ƒ Lesið þessar leiðbeiningar vandlega.
ƒ Farið eftir öllum ábendingum og fylgið öllum leiðbeiningum.
ƒ Geyma skal þessar leiðbeiningar á öruggum stað sem alltaf er hægt að komast að: Allir sem nota
vöruna verða að geta nálgast efni leiðbeininganna, einkum öryggisleiðbeiningarnar.
ƒ Ekki má setja vöruna upp nálægt rennandi vatni eða vatni sem skvettist eða á svæðum þar sem hætta
er á flóðum.
Notandi
Rafvirki
Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido