ATHUGIÐ
Hleðslan stöðvuð
Bíllinn stjórnar því hvenær hleðslunni lýkur.
Bíllinn getur gert hlé á hleðslunni.
Þegar hleðslunni er lokið stöðvar bíllinn hana sjálfkrafa.
6
Takið hleðslusnúruna úr sambandi við
hleðslutengið á rafbílnum og lokið því.
7
Gangið frá hleðslusnúrunni fyrir næstu hleðslu.
y Vegghleðslustöð með hleðslusnúru
Hengið hleðsluklóna í festinguna.
y Vegghleðslustöð með hleðslutengli
Dragið hleðsluklóna úr hleðslutenglinum
og gangið frá hleðslusnúrunni: Hleðslulokið
lokast sjálfkrafa.
Villur og bilanir lagfærðar
Komið geta upp villur og bilanir við notkun vegghleðslustöðvarinnar.
Lýsing
Rafbíllinn greinist ekki.
Orsök og tillaga að úrlausn
Hleðslusnúrunni hefur ekki verið stungið rétt í samband.
y Takið hleðslusnúruna úr sambandi við hleðslutengið á bílnum og stingið henni svo aftur í samband.
y Þegar um vegghleðslustöð með hleðslutengli er að ræða: Takið einnig hleðsluklóna úr
hleðslutengli vegghleðslustöðvarinnar og stingið henni síðan aftur í samband.
y Athugið hvort hleðslusnúran er skemmd og skiptið um hana ef þess þarf.
Lýsing
Ljósdíóðurnar á vegghleðslustöðinni blikka hratt (mörgum sinnum á sekúndu).
Orsök og tillaga að úrlausn
Vegghleðslustöðin greindi villu eða bilun sem gerir að verkum að ekki er hægt að hlaða eða aðeins að
takmörkuðu leyti. Blikkmynstur ljósdíóðanna er endurtekið lotubundið þar til villan eða bilunin hefur
verið lagfærð.
y Takið strauminn af vegghleðslustöðinni og setjið hann síðan aftur á.
y Ef villan eða bilunin kemur aftur upp skal hafa samband við faglærðan rafvirkja til þess að láta
lagfæra hana.
y Ef skipta þarf vegghleðslustöðinni út skal hafa samband við söluaðilann þar sem hún var keypt.
Wallbox eMH1 – Villur og bilanir lagfærðar
|
137