Geymsla Á Grillinu; Vetrargeymsla; Algengar Spurningar Og Svör; Ábyrgð - ROSHULTS BBQ GRIL 300 GAS Manual Del Usuario

Tabla de contenido
Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 50
Geymsla á grillinu
Geyma skal grillið undir yfirbreiðslu á sumrin þegar það er ekki í notkun. Verjið grillið fyrir raka og kulda. Þetta er einkum mikilvægt ef grillið er
staðsett nálægt sjó, þar sem saltið í sjávarloftinu styttir endingartíma grillsins verulega.

Vetrargeymsla

Aftengið gasslönguna og kútinn frá grillinu. Þrífið grillið vandlega, þ.m.t. grindurnar og brennarana. Geyma skal grillið á þurrum stað sem varinn er
fyrir frosti.
Algengar spurningar og svör
1. Hvers vegna er ekki þétti milli brennarans og gasnippilsins?
a. Gasið sem kemur út úr nipplinum og streymir inn í brennararörið blandast súrefni til að ná réttum bruna í brennaranum. Þetta tengi má EKKI
þétta. Ef þetta tengi er þétt breytist hlutfalli lofts og eldsneytis og ekki næst rétt hitastig í grillinu.
2. Til hvers eru plöturnar sem hvíla ofan á brennurunum?
a. Þessar plötur, eða eldhlífar eins og þær eru kallaðar, veita vörn gegn logum sem blossa upp í átt að matnum á grillgrindunum.
b. Þessar plötur lengja endingartíma brennaranna verulega með því að verja þá gegn olíu, fitu og vökva frá matnum.
c. Plöturnar jafna hitann vel við grillgrindurnar.
3. Hversu lengi þarf ég að bíða þar til ég get farið að elda mat á grillinu?
a. Venjulega tekur grillið 5-10 mínútur að ná réttu hitastigi.
4. Á ég að nota hraunmola eða vikur í grillinu?
a. Nei, ekki á að nota hraunmola eða vikur í Röshults-grillum.
Aukahlutir
Yfirbreiðsla
Grillgrind
Wok-pönnuhaldari
Steikarpanna
Lok
Hjól
Varahlutir í samræmi við lista yfir íhluti/varahluti.
Ábyrgð
Ábyrgðin nær alltaf yfir framleiðslugalla og augljósa hönnunargalla. Ábyrgðin nær ekki yfir ranga notkun. Ábyrgðin nær yfir ryðskemmdir af völdum
venjulegs ryðs. Við höfnum allri ábyrgð í tengslum við notkun á vörunni á sjó. 5 ára ryðvarnarábyrgð samkvæmt ISO staðli C3 medium 12944-1
og tveggja (2) ára framleiðsluábyrgð (svo framarlega sem varan hefur ekki skemmst af völdum utanaðkomandi þátta og/eða hefur ekki staðið eða
stendur ekki á jörðinni eða í vatni).
Ábyrgðin gildir ekki ef um er að ræða:
Óhapp eftir að varan hefur verið afhent
Vanrækslu
Óeðlilega notkun
Misbrest á að fylgja leiðbeiningum um umhirðu og viðhald
Notkun eða staðsetningu vörunnar á sjó
Ábyrgðin nær ekki til innri hluta grillsins sem verða fyrir hefðbundnu sliti. Vinsamlegast hafið samband við söluaðila á hverjum stað
vegna varahluta.
: SS-EN 498 ID: 0402
6
All manuals and user guides at all-guides.com
Tabla de contenido
loading

Productos relacionados para ROSHULTS BBQ GRIL 300 GAS

Este manual también es adecuado para:

Bbq gril 200 gasBbq gril 100 gas

Tabla de contenido