slíkri notkun falla því ekki undir vöruábyrgðina.
Notið hraðsuðuketilinn aðeins undir eftirliti.
Kveikið aldrei á katlinum þegar hann er tómur.
Áður en vatn er sett á ketilinn skal taka hann af botn-
stykkinu.
Setjið aldrei meira vatn í ketilinn en upp að MAX-
merkingunni (sjá mynd 2).
AÐVÖRUN: Ef ketillinn er yfirfylltur getur sjóðandi vatn
bullað upp um stútinn við notkun.
AÐVÖRUN: Hætta á brunameiðslum. Heit gufa og sjóðan-
di vatn geta valdið bruna. Opnið aldrei lokið á meðan
hraðsuðuketillinn er í gangi og farið varlega þegar vatni
er hellt úr honum.
Hraðsuðuketilinn má aðeins nota með meðfylgjandi
botnstykki.
Við þrif og viðhald á katlinum skal alltaf taka klóna úr
sambandi.
Til að forðast bruna, slys á mönnum og raflost má ekki leg-
gja neinn hluta hraðsuðuketilsins (nema lausu kalksíuna) í
bleyti í vatn eða annan vökva.
Notið hraðsuðuketilinn ekki utan dyra.
Ketillinn verður alltaf að standa á stöðugu og sléttu yfir-
borði, svo sem eldhúsborði.
Setjið ketilinn aldrei á eða nálægt eldavélarhellum,
opnum eldi eða þess háttar.
Haldið um hraðsuðuketilinn um handfangið og snertið
ekki heita fleti hans.
Leiðslan ætti aldrei að hanga laus fram af borðbrún eða
liggja á heitum fleti.
Hraðsuðuketilinn og leiðsluna skal staðsetja í hæfilegri
fjarlægð frá ofni eða eldavél og öðrum hitagjöfum.
MIKILVÆGT: Börn undir átta ára aldri mega ekki nota
ketilinn og einstaklingar með skerta líkamlega eða and-
lega færni, og skerta skynjunarfærni, mega aðeins nota
ketilinn að undangenginni fræðslu um ábyrga notkun og
áhættu samfara notkun. Slík fræðsla skal veitt af þeim
aðila sem ber ábyrgð á öryggi viðkomandi einstaklings
og sá aðili skal hafa áframhaldandi eftirlit með notkun
ketilsins. Börn ættu alltaf að vera undir eftirliti til að tryggja
að þau leiki sér ekki með ketilinn eða noti hann með
ó ábyrgum hætti. Börn geta átt erfitt með að meta áhæt-
tu og greina hættulegar aðstæður.
Börn þurfa að hafa náð átta ára aldri til að mega þrífa
og sinna viðhaldi á katlinum og þá aðeins undir eftirliti
fullorðins.
Takið klóna úr innstungunni og látið ketilinn kólna alveg
áður en hann er hreinsaður eða honum viðhaldið á
annan hátt.
Notið ekki hraðsuðuketilinn ef einhverjir hlutar hans eru
laskaðir. Til að forðast hættulegar aðstæður skal ævin-
lega skoða hraðsuðuketilinn, handfang hans, leiðsluna og
klóna fyrir hverja notkun. Á ábyrgðartíma skal framleiðan-
di, þjónustuverkstæði framleiðanda eða annar vottaður
aðili skipta um eða gera við alla hluti sem reynast skemm-
dir, samkvæmt gildandi lögum. Ef notaðir eru íhlutir frá
öðrum en framleiðanda getur það valdið eldsvoða,
slysum á mönnum eða annarri hættu.
Vöruskil vegna kvartana
Skilaréttur er samkvæmt gildandi lögum. Sjálfvirkt
stimpluð kassakvittun/sölukvittun með dagsetningu
kaupanna skal ævinlega fylgja vöruskilum vegna kvar-
tana. Við vöruskil skal afhenda hraðsuðuketilinn á þeim
sölustað þar sem hann var keyptur.
Stelton A/S
Christianshavns Kanal 4
1406 København K
Danmark
www.stelton.com
Förgun ketilsins
Lög kveða á um að safna skuli saman raftækjum
og rafeindabúnaði og endurvinna hluta þeirra.
Rafeindabúnaður og raftæki sem merkt eru með
tákni fyrir sorpflokkun skal skila inn á endurvinnslu-
stöð í hverju sveitarfélagi.
Tæknilegar upplýsingar
Emma hraðsuðuketill
Leiðslulaus ketill
Laust botnstykki með 360° snúningi,
tengt í rafmagn með leiðslu
Með vörn gegn suðu án vatns
220–240 V
50/60 HZ
Afl: 1850–2200 W
Rúmtak: 1,2 l
Með fyrirvara um breytingar og úrbætur.
IS
37