ÍSLENSKA
Öryggisleiðbeiningar
MIKILVÆGT AÐ LESA OG FARA EFTIR
Áður en tækið er notað skal lesa þessar
öryggisleiðbeiningar. Geymið þær til að
geta leitað í þær síðar meir. Í þessum
leiðbeiningum og á tækinu sjálfu eru
mikilvægar öryggisaðvaranir sem notandi
þarf að lesa og fara eftir í hvívetna.
Framleiðandi afsalar sér allri ábyrgð vegna
vanrækslu á því að fara eftir þessum
öryggisleiðbeiningum, óviðeigandi
notkunar tækisins eða rangra stillinga á
stjórnbúnaði.
Halda skal mjög ungum börnum (0-3
ára) fjarri tækinu. Ungum börnum (3-8 ára)
ætti að halda frá tækinu nema stöðugt
sé fylgst með þeim. Börn sem eru 8 ára
eða eldri og einstaklingar með minnkaða
líkamlega, skynjunarlega eða andlega
getu eða skort á reynslu og þekkingu
mega aðeins nota þetta tæki undir eftirliti
eða eftir að hafa fengið leiðbeiningar um
örugga notkun og skilja hætturnar sem því
fylgja. Börn mega ekki leika sér að tækinu.
Börn meiga ekki framkvæma hreinsun
og notendaviðhald án eftirlits. Börn á
aldrinum 3 til 8 ára mega setja í og taka úr
tækinu.
LEYFILEG NOTKUN
VARÚÐ: Tækið er ekki ætlað til
notkunar með utanaðkomandi
gangsetningarbúnaði, svo sem tímastilli
eða aðskildu fjarstýringarkerfi.
Þetta tæki er ætlað til notkunar á
heimilum og á svipuðum stöðum, svo
sem: í eldhúsi starfsfólks í verslunum,
á skrifstofum og öðrum vinnustöðum;
á sveitabæjum; af hálfu viðskiptavina á
hótelum, vegahótelum, gistiheimilum og
öðrum dvalarstöðum.
Þetta tæki er ekki ætlað til notkunar í
iðnaði. Notið tækið ekki utandyra.
Ljósaperan sem notuð er í tækinu er
sérstaklega hönnuð fyrir heimilistæki og
hentar ekki sem herbergislýsing innan
heimilisins (reglugerð EB nr. 244/2009).
Tækið er hannað til notkunar á
stöðum þar sem umhverfishitastig er
innan neðangreindra marka samkvæmt
loftslagsflokki sem gefinn er upp á
merkiplötunni. Vera má að tækið virki ekki
rétt ef það er skilið eftir í langan tíma við
hita sem fer umfram tilgreind mörk.
Loftslagsflokkar umhverfishitastigs (°C)
SN: Frá 10 til 32
N: Frá 16 til 32
ST: Frá 16 til 38
T: Frá 16 til 43
Þetta tæki inniheldur ekki
klórflúorkolefni. Kælirásin inniheldur
R600a (vetniskolefni). Tæki með
ísóbútan (R600a): ísóbútan er
náttúrleg gastegund sem hefur
ekki áhrif á umhverfið en er eldfim.
Þess vegna skal tryggja að rör
kælirásarinnar séu ekki skemmd,
sérstaklega þegar kælirásin er tæmd.
VIÐVÖRUN!: Skemmið ekki rör
kælirásar tækisins.
VIÐVÖRUN!: Haldið loftræstiraufum
utan á tækinu eða í innbyggðum hlutum
þess lausum við hindranir.
VIÐVÖRUN!: Notið ekki vélar, raftæki
eða íðefni önnur en þau sem ráðlögð eru
af framleiðanda til að flýta fyrir affrystingu.
VIÐVÖRUN!: Notið ekki eða setjið
raftæki inn í hólf tækisins ef framleiðandi
hefur ekki skýrlega tekið þau fram.
VIÐVÖRUN!: Klakavélar og/eða
vatnsskammtara sem eru ekki tengdir við
vatnsveitu þarf að fylla með drykkjarhæfu
vatni eingöngu.
VIÐVÖRUN!: Sjálfvirkar klakavélar
og/eða vatnsskammtara skal tengja við
vatnsveitu með drykkjarhæfu vatni og
þrýstingurinn á að vera á milli 0,17 og
0,81 MPa (1,7 og 8,1 bör).
Geymið ekki sprengifim efni s.s.
úðabrúsa og setjið ekki eða notið eldsneyti
eða önnur eldfim efni í eða nærri tækinu.
Gleypið ekki innihald (óeitrað)
klakapakkanna (fylgir með sumum
gerðum). Borðið ekki klaka eða íspinna
strax eftir að hafa tekið þá úr frystinum
þar sem þeir geta valdið frostbiti.
Fyrir tæki sem eru hönnuð með loftsíu
innan í hlíf aðgengilegrar viftu skal sían
ávallt vera á sínum stað þegar ísskápurinn
er í gangi.
Geymið ekki glerílát með vökvum í
frystihólfinu þar sem þau gætu sprungið.
Hyljið ekki viftuna (ef til staðar) með
matvælum. Eftir að hafa sett matvælin í
skal athuga að dyr hólfanna lokist á réttan
hátt, sérstaklega dyr frystisins.
Skipta skal um skemmd þétti eins fljótt
og auðið er.
70