Anleitung_JHB_46_RE_SPK7:_
7.3 Geymsla sláttuvélar gerð tilbúin
Varúðartilmæli: Fjarlægið ekki bensín af tækinu í
lokuðum rýmum, í nánd við eld eða á meðan að reykt
er. Bensíngufur geta valdið eldi eða sprengingum.
1. Tæmið bensíntankinn með þar til gerðri
bensíndælu.
2. Gangsetjið mótorinn og látið hann ganga það
lengi að leifar af bensíni nái að klárast alveg.
3. Skiptið um olíu fyrir hverja tíðarbyrjun. Til þess
verður að fjarlægja gamla olíu af heitum mótor og
fylla á nýja.
4. Fjarlægið kertið úr strokknum. Setjið um það bil
20 ml af olíu ofan í strokkinn með olíukönnu.
Togið varlega í gangsetningarþráðinn þannig að
olían nái að dreifast um strokkinn og hlífa honum.
Skrúfið kertið aftur í strokkinn.
5. Hreinsið kæliplötur strokks og mótorhús.
6. Hreinsið allt tækið til þess að hlífa lakkhúðun
þess.
7. Geymið tækið á vel umloftuðum stað eða rými.
7.4 Sláttuvél gerð tilbúin til flutninga
1. Tæmið bensíntankinn (sjá lið 7.3/1)
2. Látið mótor tækisins ganga það lengi að leifar af
bensíni nái að klárast alveg.
3. Tæmið mótorolíuna af heitum mótornum.
4. Fjarlægið kertahettuna af kertinu.
5. Hreinsið kæliplötur strokks og mótorhús.
6. Losið vængjarærnar og leggið efra beislinu niður
á við (mynd 7). Athugið að barkarnir brotni ekki
þegar að beislið er sett niður.
7. Brjótið nokkur lög af bylgjupappír á milli efra og
neðra beislis og mótors til að koma í veg fyrir
skemmdir á tækinu.
7.5 Pöntun varahluta
Þegar að varahlutir eru pantaðir ættu eftirfarandi atriði
að vera tilgreind:
Gerð tækis
Gerðarnúmer tækis
Númer tækis
Varahlutanúmer þess varahlutar sem panta á
Verð og upplýsingar eru að finna undir www.isc-
gmbh.info
04.12.2009
9:41 Uhr
Seite 183
8. Förgun og endurnotkun
Þetta tæki er afhent í umbúðum sem hlífa tækinu fyrir
skemmdum við flutninga. Þessar pakkningar
endurnýtanlegar eða hægt er að endurvinna þær.
Þetta tæki og aukahlutir þess eru úr mismunandi
efnum eins og til dæmis málmi og platefnum. Fargið
ónýtum hlutum tækis í þar til gert sorp. Spyrjið
viðeigandi sorpstöð eða á bæjarskrifstofum!
IS
183