3M PELTOR LiteCom Manual De Instrucciones página 79

Ocultar thumbs Ver también para PELTOR LiteCom:
Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 43
IS
3M™ PELTOR™ LiteCom Headset
MT53H7*4400-EU
INNGANGUR
Til hamingju og þakka þér fyrir að velja samskiptalausn frá
3M™ PELTOR™! Velkomin að næstu kynslóð persónuhlífa
með samskiptabúnaði.
ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum 3M™ PELTOR™ heyrnartólum er ætlað að veita
starfsmönnum vernd gegn hættulegum styrk hávaða og
háværum hljóðum, jafnframt því að geta átt fjarskipti með
innbyggðu talstöðinni. Gert er ráð fyrir því að allir notendur
lesi og skilji meðfylgjandi leiðbeiningar notenda ásamt því
að kunna að nota tækið.
MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu
eftir þeim áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar. Hafðu
samband við tæknideild 3M (samskiptaupplýsingar er að
finna á öftustu síðu).
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna
hávaða og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar
notaðar rangt eða notkun þeirra sleppt þann tíma
sem dvalist er í hættulegum hávaða, getur það leitt til
heyrnarskerðingar eða -taps. Ræddu við verkstjóra,
kynntu þér leiðbeiningar notenda eða hafðu samband við
tæknideild 3M til þess að kynna þér rétta notkun. Ef þér
finnst eins og þú sért með bómull í eyrunum eða heyrir
són eða suð í eða eftir hávaða (byssuskot meðtalin),
eða ef þú hefur einhverja aðra ástæðu til að ætla að þú
glímir við heyrnarvanda, skaltu yfirgefa hávaðasama
umhverfið umsvifalaust og hafa samband við lækni og/
eða verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
leitt til alvarlegs líkamstjóns eða dauða:
a. Sé hlustað á tónlist eða önnur hljóðskilaboð, getur
það dregið úr athygli á umhverfinu og getunni til þess
að heyra viðvörunarmerki. Vertu á verði og hafðu hljóðið
eins lágt stillt og mögulegt er að sætta sig við. Erfiðara
getur reynst að heyra viðvörunarmerki á vinnustaðnum á
meðan hlustað er á afþreyingu.
b. Notaðu ekki búnaðinn í mögulega sprengifimu
umhverfi til að draga úr hættu á því að sprenging verði.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
dregið úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt
til heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að kanna hvort
heyrnarhlífar passa. Rannsóknir benda til þess að
hjá mörgum notendum sé hljóðeinangrun minni en
hljóðdeyfingartöflur á umbúðum benda til vegna frávika
73
við að fella hlífarnar að hverjum notanda fyrir sig og færni
hans og hvatningu til þess.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim
komið fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum
komið fyrir á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu
hans til þess að deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi
upplýsingar um rétta notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu
þær skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða
forðastu hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum
(t.d. öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að
velja sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess
að þau hafi sem minnst áhrif á heyrnarhlífapúðana.
Fjarlægðu allt annað (t.d. hár, húfur, skartgripi,
heyrnartól, hreinlætishlífar o.s.frv.) sem gæti dregið
úr einangrunargildi eyrnahlífapúðanna og verndargildi
hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun höfuðspöng eða
hálsspöng og gættu þess að hún sé nógu öflug til þess að
halda heyrnarhlífunum tryggilega á sínum stað.
f. Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið
lélegir með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu
millibili í leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu
heyrnarhlífapúðarnir notaðir reglulega, ber að skipta um
þá og frauðhringina að minnsta kosti tvisvar á ári til þess
að viðhalda fullnægjandi vernd, hreinlæti og þægindum.
g. Sé ekki farið eftir ofangreindum kröfum, skerðir það
verndareiginleika eyrnahlífanna verulega.
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika eyrnahlífanna.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru
þessari. Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• Eyrnahlífar þessar festar á hjálm eru í „stórri stærð".
Eyrnahlífar fyrir hjálma sem uppfylla kröfur EN 352-3
eru í „millistærð" eða „lítilli stærð" eða „stórri stærð".
Eyrnahlífar fyrir hjálma í „millistærð" henta meirihluta
notenda. Eyrnahlífar fyrir hjálma í „lítilli stærð" eða „stórri
stærð" fyrir hjálma eru hannaðar fyrir notendur sem ekki
geta notað eyrnahlífar af millistærð.
VARÚÐ
• Sé röng rafhlaða notuð, getur verið hætta á sprengingu.
• Hlaðið ekki rafhlöðurnar við hærra hitasig en 45°C
(113°F).
• Notið eingöngu 3M™ PELTOR™ aflgjafann FR08 til að
endurhlaða hleðslurafhlöður.
ATHUGASEMD
• Þegar heyrnarhlífarnar eru notaðar í samræmi við
leiðbeiningar notenda, draga þær bæði úr stöðugum
hávaða, svo sem í iðnaði eða frá ökutækjum og
flugvélum, og skyndilegum hávaða, til dæmis
byssuskotum. Erfitt er að segja fyrir um þá heyrnarvernd
sem þörf er á eða í raun er veitt hvað varðar váhrif af
skyndilegum hávaða. Það hefur áhrif á vernd gegn
loading