156
Skipt um áklæði
• Leggið á minnið hvernig áklæðið er tekið af til að geta sett það aftur
eins á.
• Hægt er að taka áklæði höfuðpúðans af eitt og sér með því að losa
smellurnar aftan á og toga áklæðið af.
! Aðvörun: Möguleg mistök
• EKKI MÁ setja stólinn í framsæti MEÐ VIRKUM
ÖRYGGISPÚÐA.
• Alltaf skal nota gólfstuðninginn og ganga tryggilega frá
honum þannig að hann sé eins mikið út dreginn og hægt er.
• Framstoðin verður að vera fest á stólastöðina þegar hún er notuð með
iZi Modular.
• Gakktu úr skugga um að merkin séu græn á ISO-fix festingunum áður
en ekið er af stað.
Ábyrgð
• Allar BeSafe vörur eru hannaðar, framleiddar og prófaðar af kostgæfni
bæði af framleiðanda og óháðum eftirlitsaðilum. Ef stóllinn uppfyllir
ekki kröfur vinsamlegast skilið honum til VÍS.
• Ef lagfæra þarf stólinn sem þú leigir, hafðu þá samband við
barnabílstóla VÍS í síma 560-5365 eða komdu við á næstu
þjónustuskrifstofu VÍS. Ekki reyna að lagfæra stólinn upp á
eigin spýtur.
• Stól sem lent hefur í umferðarslysi skal skila strax til VÍS og fá annan
í staðinn
157