ALPHA-TOOLS A-ES 700 Manual De Instrucciones página 70

Tabla de contenido
Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 20
Anleitung_A_ES_700_SPK7:_
IS
Varúð!
Við notkun á tækjum eru ýmis öryggisatriði sem fara
verður eftir til þess að koma í veg fyrir slys og skaða.
Lesið því notandaleiðbeiningarnar /
öryggisleiðbeiningarnar vandlega. Geymið allar
leiðbeiningar vel þannig að ávallt sé hægt að grípa til
þeirra ef þörf er á. Látið notandaleiðbeiningarnar /
öryggisleiðbeiningarnar ávallt fylgja með tækinu ef
það er afhent öðrum. Við tökum enga ábyrgð á
slysum eða skaða sem hlotist getur af notkun sem
ekki er nefnd í þessum notandaleiðbeiningum eða
öryggisleiðbeiningar.
1. Mikilvæg tilmæli!
Athugið orkustöðina vegna skemmda fyrir hverja
notkun.
Haldið réttri netspennu (230V ~ 50Hz).
Vinsamlegast athugið að ef rafmagnstæki eru
ekki rétt notuð geta myndast mismunandi hættur
sem börn gera sér jafnvel ekki grein fyrir.
Haldið börnum fjarri rafgeyminum og
orkustöðinni.
Skipta verður um bilaða eða skemmda hluti
tækisins eða gera verður við þá af
þjónustuverkstæði, svo framarlega sem öðru er
ekki lýst í notandaleiðbeiningunum. Skemmda
rofa verður að láta viðurkenndan þjónustuaðila
skipta um.
Hlífið tækið fyrir regni, vatni og raka.
Látið tækið ekki standa á upphituðum undirfleti.
Slökkvið ávallt á orkustöðinni á meðan að hún er
ekki í notkun.
Þegar að rafgeymirinn er hlaðinn, einnig á meðan
að fyllt er sýra á hann eða eimuðu vatni verður
notandi ávallt að nota öryggisgleraugu og
sýruþolna vettlinga. Vegna sýrunnar, sem er
ætandi myndast aukinn hætta!
Varúð! Rafgeymasýran er ætandi efni.
Sýruslettur á húð og klæðnaði verður að hreinsa
tafarlaust með sápuvatni. Skolið augu tafarlaust
með vatni ef að sýra kemst í þau (15 mínútur) og
leitið til læknis.
Þegar að rafgeymirinn er hlaðin má ekki klæðast
fatnaði úr gerviefnum til þess að koma í veg fyrir
neista vegna stöðuorku.
Varúð! Forðist neista og loga. Við hleðslu
myndast eldfimt gas sem myndar getur
sprengingar.
Orkustöðin inniheldur hluti, eins og til dæmis rofa
og öryggi sem mynda geta neista og stutta loga.
Nauðsynlegt er að tryggja góða loftræstingu í
bílskúrnum eða því rými sem tækið stendur í.
Varúð! Ef gaslykt er mikil er mikil hætta á
70
19.04.2010
14:46 Uhr
Seite 70
sprengingu. Slökkvið ekki á tæki og takið
hleðslukapla ekki úr sambandi. Loftið rýmið
tafarlaust. Látið þjónustuverkstæði yfirfara
rafgeyminn.
Hlaðið ekki fleiri en einn rafgeymi í einu.
Hlaðið ekki óhlaðanlega rafgeyma eða rafhlöður.
Athugið tilmæli framleiðanda rafhlöðunnar.
Farið einnig eftir leiðbeiningum framleiðanda bíls
varðandi hleðslu á rafgeymi.
Förgun
Rafhlöður: Einungis förgun á tilskildum
sorpmótökustað. Leitið upplýsingar hjá
bæjarskrifstofu.
Mikilvægt!
Orkustöðin er útbúin umhirðulausum þéttum blý-
gel rafgeymi. Rafgeymirinn verður afhentur að
hluta til hlaðinn.
Fyrir fyrstu notkun verður að hlaða rafgeymi
tækisins að fullu.
Ef tækið er ekki notað til lengri tíma tæmist
rafhlaða þess sjálfkrafa.
Notið einungis upprunaleg hleðslutæki til þess að
hlaða.
Lofdæla
Þrífið aldrei föt með háþrýstilofti.
Blásið ekki á fólk eða dýr með háðþrýstilofti.
Haldið loftopum lausum við óhreinindi.
Lofdælan má ekki soga í sig ryk eða önnur
óhreinindi.
Noti loftdæluna ekki til þess að blása í
háþrýstidekk eins og til dæmis vörubíladekk,
traktorsdekk eða kerrudekk.
Ef að dæla á lofti í mörg dekk, látið tækið þá ná
að kólna í um það bil 30 mínútur á milli. Hámark
standslaus notkunartími tækis er 10 mínútur og
má notkun ekki vera lengri en það í einu.
Umhverfisvernd
Vinsamlegast athugið að umbúðir, notaðir rafgeymar
eða bilaðir rafgeymar eða hleðslurafhlöður lendi ekki í
venjulegu heimilissorpi. Skilið þessum hlutum á
viðeigandi sorpstöð.
Tabla de contenido
loading

Este manual también es adecuado para:

10.910.31

Tabla de contenido