ISL
Notandahandbók
•
Tengileiðslan verður að vera spennulaus við uppsetningu. Takið aflgjafann úr sambandi og notaðu
prófunartæki fyrir spennu til að tryggja að leiðslan sé spennulaus.
•
Örugg notkun er ekki lengur möguleg ef tækið er sýnilega skemmt.
•
Setjið LED-flóðljósið upp í að minnsta kosti 2,3 m hæð (þar sem fólk nær ekki til).
•
Það ætti að vera að minnsta kosti 1 m bil á milli flóðljóssins og þess hlutar sem
þú vilt lýsa upp.
•
Setjið LED-flóðljósið upp á vegg þannig að hreyfineminn sé fyrir neðan
flóðljósið.
•
Hlífðarhús LED-flóðljóssins getur orðið mjög heitt við notkun. Tryggið að flóðljósið sé loftræst á
viðunandi máta til að ýta undir dreifingu á þeim hita sem myndast.
Hætta á meiðslum sem draga til dauða vegna raflosts! Forðist að skemma neinar vatns-,
•
rafmagns- eða fjarskiptalínur þegar göt eru boruð. Notið staðsetningartæki fyrir línu.
Hvar staðsetja skal LED-flóðljós
•
Komið vörunni aðeins fyrir á stöðugu yfirborði, t.d. múrhleðslu.
•
Veljið stað sem varinn er fyrir vindi og regni (t.d. undir þakskeggi).
Hvar staðsetja skal ekki LED-flóðljós
•
Verndið tækið fyrir:
Hitastigi yfir 40 °C
Hitastigi undir -10 °C
Beinu sólarljósi
Ryki
•
Hætta á rafstuði! Þó að hluturinn sé skvettheldur (IP44) skal ekki nota hann í nálægð við vatn
eða aðra vökva eða á stöðum þar sem vatn eða annar vökvi getur safnast saman. Ekki setja hlutinn
á kaf í vatn. Haldið vörunni í að lágmarki 5 metra fjarlægð frá sundlaugum og tjörnum. Verndið
stofnleiðsluna fyrir raka.
•
Haldið vörunni í að lágmarki 10 cm fjarlægð frá öðrum hlutum til að tryggja viðeigandi
loftræstingu. Setjið tækið upp á vel loftræstum stað. Tryggið að tækið sé ekki hulið af runnum,
laufum eða álíka hlutum.
•
Setjið ekki tækið á stað sem er háður miklum hitabreytingum, t.d. nálægt viftum, loftkælingu og
hiturum.
•
Setjið LED-flóðljósið ekki upp á mastur.
•
Setjið LED-flóðljósið ekki upp á loft.
•
Beinið ekki hreyfinemanum að yfirborði sem endurkastar ljósi og svæðum á borð við sundlaugar
eða tjarnir.
•
Hitageislun fer í beinni línu en stöðvast vegna glers eða annarra þéttra hluta. Þess vegna skal ávallt
athuga með hugsanlegar hindranir af þessu tagi áður en uppsetning á sér stað.
•
Dýr (t.d. hundar, kettir, fuglar) og ökutæki sem hreyfast á nemasviðinu kunna að vekja
hreyfinemann.
24794747_24810360-ProfiDepot-IM-V03-Multi.indb 68
-68-
1 m
23/9/2016 12:13 PM