Notkunarleiðbeiningar
IS
1. Öryggi
Viðvörun
- Ekki má nota óþétta eða bilaða vöru og alls ekki má dýfa henni í vatn eða aðra vökva.
- Þessi vara er ekkert leikfang og ekki má láta börn fá hana. Ekki má láta börn sjá um þrif og viðhald á
vörunni.
Viðvörun
- Ef varan er í gangi skal ekki horfa í ljósið í lengri tíma. Slíkt getur verið skaðlegt fyrir augun.
- Notkun fylgihluta og aukahluta sem ekki eru sérstaklega samþykktir af framleiðanda getur leitt til
skemmda og fellir ábyrgðina úr gildi.
- Einungis skal nota vöruna þegar búið er að setja hana algerlega saman.
- Haldið vörunni frá hita, eins og t.d. miðstöðvarofnum, bakaraofnum og öðrum tækjum sem gefa frá sér
hita, og eins skal hlífa vörunni við ryki og hvössum köntum.
- Ekki skal líma neina hluti á vöruna né breiða yfir hana.
- Ekki skal setja hluti ofan á vöruna sem eru með opnum eld, eins og t.d. kerti og heldur enga hluti sem
innihalda vökva eins og t.d. kaffibolla.
Ábending: Í vörunni eru ljósdíóður með mikinn endingartíma. Ekki er hægt að skipta um þær.
Rafhlöður:
1. Athugið - Sprengihætta getur myndast ef ekki er skipt um rafhlöður á réttan hátt.
2. Einungis skal nota sambærilegar rafhlöður ef skipt er um þær (hlaðanlegar rafhlöður).
3. Ekki má hafa rafhlöðurnar of nálægt miklum hita eins og eldi eða öðrum hitagjafa. Hætta er á að
rafhlöðurnar springi.
4. Ávallt skal nota rétta rafhlöðustærð og rétta rafhlöðugerð.
5. Skipta skal um allar rafhlöðurnar í einu.
6. Hreinsa skal rafhlöðuskautin bæði á rafhlöðunum sem og í vörunni sjálfri áður en rafhlöður eru settar í.
7. Tryggið að rafhlöðurnar séu settar rétt í (þ.e. gæta þess að pólarnir (+ og -) snúi rétt.
Að fjarlægja rafhlöðurnar
1. Ef rafhlöðurnar eru orðnar gamlar og ekki er lengur hægt að hlaða þær, skal skipta þeim út fyrir
samskonar rafhlöðutegund og farga skal gömlu rafhlöðunum með réttum hætti.
2. Skrúfið vöruna í sundur með skrúfjárninu sem fylgir með.
3. Fjarlægið stjörnuskrúfurnar sex sem liggja í kringum sólarrafhlöðuna. Fjarlægið auk þess 2
stjörnuskrúfur sem eru á platínunni þar sem ljósdíóðurnar eru.
4. Lyftið svörtu plötunni á hlífinni upp. Á neðri hliðinni er festingin (engin mynd) fyrir rafhlöðurnar.
5. Gætið þess að pólarnir (+ og -) snúi rétt þegar rafhlöðurnar eru settar í.
6. Skrúfið vöruna aftur saman. Athugið hvort allar skrúfurnar séu fastar.
Viðvörun - Köfnunarhætta!
Pökkunarefnið er ekkert leikfang. Lítil börn geta kafnað á plastpokum, þekjuplasti eða frauðplastbitum.
Haldið pökkunarefninu frá börnum.
Ábending: Ef liturinn er valinn í dagsljósi, lýsir liturinn sem er valinn í 3 sekúndur áður en slokknar
sjálfkrafa á tækinu. Ef aftur er kveikt á tækinu lýsir næsta ljós í röðinni sem tilgreind er í töflunni.
Ábending: Áður en varan er sett í geymslu verður að slökkva handvirkt á tækinu.
2. Förgun
Hægt er að endurnýta pakkningarnar.
Farga skal pakkningunum með umhverfisvænum hætti og farið með þau í endurvinnslu.
Rafhlöður og rafgeymar
Rafhlöður og rafgeymar mega ekki fara í heimilissorpið!
Sérhverjum notenda ber skylda til að fara með rafhlöður og rafgeyma, sama hvort þau innihalda
skaðleg efni* eða ekki, á endurvinnslustöð eða skila þeim í verslunina þar sem þau voru keypt,
svo hægt sé að farga þeim á viðunnandi hátt.
Einungis skal skila rafhlöðum og rafgeymum tómum.
* merkt með:
Cd = Kadmíum, Hg = Kvikasilfur, Pb = Blí
Förgun tækisins
Notuð tæki mega ekki fara í heimilissorpið!
Sérhver notandi er skyldugur til að farga tækinu, ef hætt er að nota það, aðskilið frá hefðbundnu
heimilissorpi og farga því á löglegan hátt með því að fara með það á endurvinnslustöð. Með
þessu er tryggt að notuð tæki séu förguð með réttum hætti og komið í veg fyrir að umhverfið sé
mengað.
Vegna þessa eru rafmagnstæki merkt með umhverfistákninu.
Greinin uppfyllir allar kröfur sem þarf til að fá CE-merkið. Ef nauðsyn krefur, beðið um EB-samræmisyfirlýsingu
fyrir þessa vöru til að hafa samband við framleiðanda: E-mail:
[email protected]~~dobj.
Dreifingaraðili:
INNOcom Gmbh,
Ehnkenweg 9, 26125 Oldenburg, Þýskaland
Made in China
Vörunr:
33300297