Eftir uppsetningu
» Bannað er að fara á milli hliðvængjanna á meðan þeir eru á hreyfingu. Bíða skal þar til hliðvængirnir hafa opnast að fullu
áður en farið er í gegnum þá.
» Með öllu óheimilt er að standa á milli hliðvængjanna.
» Ekkert fólk eða hlutir mega vera í næsta nágrenni við hliðbúnaðinn. Þetta á sérstaklega við þegar hliðið er opnað eða því
er lokað.
» Ekki skyldi reyna af ásettu ráði að ýta á móti hreyfingu hliðvængjanna.
» Trjágreinar og runnar mega ekki trufla virkni sjálfvirka hliðbúnaðarins.
» Ekki má hreyfa hliðvængina handvirkt fyrr en búið er að taka hliðið úr lás með neyðaropnunarbúnaði.
» Áður en gerðar eru breytingar á kerfinu skal taka búnaðinn úr sambandi við rafmagn.
» Ef bilun á sér stað skal taka hliðvængina úr lás svo hægt sé að fara í gegn. Bíða skal eftir fagmanni til að sjá um tæknile-
ga framkvæmd.
» Við mælum með því að vottaður fagaðili komi að minnsta kosti á hálfs árs fresti til að yfirfara virkni hliðbúnaðarins, öryg-
gisbúnaðarins og fylgibúnaðar.
Ábyrgðarskilmálar
Ágæti viðskiptavinur! Það er okkur sönn ánægja að þú skulir hafa valið vöru frá SCHELLENBERG.
Allar SCHELLENBERG-vörur gangast undir prófanir og skoðanir hjá gæðastýringardeild SCHELLENBERG.
Við ábyrgjumst því að vörur okkar eru lausar við efnis- og framleiðslugalla.
Ekki er tekin ábyrgð á skemmdum sem verða vegna:
» eðlilegs slits sem verður við notkun
» rangrar uppsetningar, tengingar, notkunar eða meðferðar
» óviðráðanlegra atvika eða annarra ytri áhrifa
» rangs viðhalds eða viðgerða af hendi þriðja aðila
» tæknilegra breytinga af hendi þriðja aðila"
Ábyrgðin gildir aðeins ef lagt er fram afrit af frumriti sölukvittunar. Þegar vara er send til baka skal ávallt láta fylgja með afrit
af upprunalegri sölukvittun ásamt lýsingu á gallanum sem um ræðir." Ábyrgðin fyrir Twin 300-drifið gildir í 24 mánuði frá
kaupdegi. „Ef upp koma mál varðandi ábyrgð, þörf á varahlutum eða spurningar um rétta uppsetningu á vörunni skal hafa
samband við þjónustudeild okkar. Starfsfólk SCHELLENBERG er ávallt reiðubúið að veita persónulega ráðgjöf.
Endursending tækja:
Alfred Schellenberg GmbH
Endverbraucher-Service
An den Weiden 31
D-57078 Siegen
Þjónustudeild:
Við vonum að varan muni koma að góðum notum.Starfsfólk SCHELLENBERG
239