Útvarp (sjá Mynd 3a)
Hljóðmerkið frá hátölurum hlífanna fer að hámarki
upp í 82 dB(A) við eyrað.
Ef hlustað er á útvarp kunna viðvörunarmerki á
vinnustaðnum að heyrast verr.
Á/Af styrkur
– Snúið ("a")Radio-takkanum til að kveikja á
útvarpinu. Snúið áfram réttsælis til að hækka
styrkinn.
– Ef móttökuskilyrði eru slæm fer útvarpið
sjálfkrafa úr stereó í mónó til að viðhalda hámarks
hljómgæðum.
Tíðni-/rásaveljari (sjá Mynd 3b)
– Snúið ("b")FM-takkanum til að velja rás.
– Tíðnisvið útvarpsins er FM 88-108 MHz, AM
540-1700 KHz ("c")
Inntak fyrir ytri hljóðmerki (sjá Mynd 4)
Heyrnarhlífarnar eru búnar rafrænu inntaki fyrir
hljóðmerki. Gangið úr skugga um að það virki
áður en hlífarnar eru notaðar. Ef truflun eða bilun
kemur upp kannið þá leiðbeiningar framleiðanda.
– Viðvörun! Tenging við ytri hljóðgjafa getur haft í
för með sér hljóðstyrk yfir leyfilegum mörkum.
– Hámarks leyfilegur hljóðstyrkur er: 81,0mV
– Hægt er að tengja við talstöðvar, MP3-spilara
og aðra ytri hljóðgjafa í 3,5 mm inntakið.
– Þegar inntakið fyrir ytri hljóðmerki er notað
verður að vera skrúfað frá hljóðstyrknum.
Rafhlöður (sjá Mynd 5)
– Hlífarnar eru með tveimur 1,5 V AA rafhlöðum.
– Aðeins má nota 1,5 V AA NiMH rafhlöður.
– Gangið úr skugga um að pólarnir snúi rétt.
– Ekki má skipta um rafhlöður meðan kveikt er
á tækinu.
– Viðvörun! Virknin getur versnað eftir því
sem hleðslan í rafhlöðunum minnkar. Við
venjulega notkun endast rafhlöðurnar í um 300
klukkustundir.
Varahlutir/fylgihlutir
Hreinlætissett #17900
– 2 þéttihringir
– 2 dempunarpúðar
– 1 eyrnaskálapúði (aðeins fyrir höfuðspöng)
Veljið rétt hreinlætissett fyrir hlífarnar. Settið á að
endurnýja að minnsta kosti tvisvar á ári.