3M STIHL PELTOR Optime I H510A Manual Del Usuario página 72

Ocultar thumbs Ver también para STIHL PELTOR Optime I H510A:
Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 41
3M™ PELTOR™ OPTIME™ eyrnahlífar
H510A, H510B, H510F, H510P3
H520A, H520B, H520F, H520P3
H540A, H540B, H540P3
3M™ PELTOR™ H31 eyrnahlífar
H31A, H31P3
1.
INNGANGUR
1.1. ÆTLUÐ NOTKUN
Þessum eyrnahlífum er ætlað að veita starfsmönnum vernd
gegn hættulegum hávaða. Gert er ráð fyrir því að allir
notendur lesi og skilji meðfylgjandi leiðbeiningar notenda
ásamt því að kunna að nota tækið.
3M PSD vörur eru eingöngu ætlaðar til notkunar í
atvinnuskyni.
Sumar 3M PELTOR vörur gætu einnig hentað til ákveðinna
verkefna annarra en í atvinnuskyni í Evrópu.
Lestu alltaf og farðu eftir Leiðbeiningum notanda.
1.2. ÚTBÚNAÐUR
Með orðinu útbúnaður er í þessu skjali átt við höfuðhlífar,
andlitshlífar og/eða búnað sem ekki veitir vernd.
2.
ÖRYGGI
2.1. MIKILVÆGT
Lestu vinsamlegast, gerðu þér grein fyrir öllum
öryggisupplýsingum í leiðbeiningum þessum og farðu eftir
þeim áður en þú tekur heyrnartólin í notkun. Geymdu
leiðbeiningarnar til þess að geta leitað í þær síðar. Hafðu
samband við tæknideild 3M (samskiptaupplýsingar er að
finna á öftustu síðu).
!
VIÐVÖRUN
Heyrnarhlífarnar draga úr hættu á heilsutjóni vegna hávaða
og annarra háværra hljóða. Séu heyrnarhlífar notaðar rangt
eða notkun þeirra sleppt þann tíma sem dvalist er í
hættulegum hávaða, getur það leitt til heyrnarskerðingar
eða -taps. Ræddu við verkstjóra, kynntu þér leiðbeiningar
notenda eða hafðu samband við tæknideild 3M til þess að
kynna þér rétta notkun. Ef þér finnst eins og þú sért með
bómull í eyrunum eða heyrir són eða suð í eða eftir hávaða
(byssuskot meðtalin), eða ef þú hefur einhverja aðra
ástæðu til að ætla að þú glímir við heyrnarvanda, skaltu
yfirgefa hávaðasama umhverfið umsvifalaust og hafa
samband við lækni og/eða verkstjóra þinn.
Sé ekki farið eftir leiðbeiningum þessum, gæti það
dregið úr verndargetu heyrnarhlífanna og jafnvel leitt
til heyrnartjóns:
a. 3M mælir eindregið með því að hver og einn notandi
felli allar heyrnarhlífar vandlega að sér. Rannsóknir
benda til þess að stundum sé hljóðeinangrun minni en
hljóðdeyfingargildi á umbúðum gefa til kynna vegna
frávika við að fella hlífarnar að hverjum notanda fyrir sig
og færni viðkomandi og hvatningu til þess. Kynntu þér
viðeigandi reglur og leiðbeiningar á merkimiða um
aðlögun suðhlutfalls/falla til merkis. Séu viðeigandi
reglur ekki fyrir hendi er mælt með því að lækka
suðhlutfall/föll til merkis til að geta betur metið
dæmigerða vernd.
b. Gættu þess að réttar heyrnarhlífar séu valdar, þeim
komið fyrir, þær aðfelldar og haldið við. Sé búnaðinum
komið fyrir á ófullnægjandi hátt, dregur það úr getu
hans til þess að deyfa hávaða. Kynntu þér meðfylgjandi
upplýsingar um rétta notkun.
c. Skoðaðu heyrnarhlífarnar fyrir hverja notkun. Séu þær
skemmdar, veldu þér óskaddaðar heyrnarhlífar eða
forðastu hávaðasamt umhverfi.
d. Sé nauðsynlegt að bæta við frekari persónuhlífum, (t.d.
öryggisgleraugum, öndunargrímum o.s.frv.), ber að
velja sveigjanlegar og þunnar teygjur eða bönd til þess
að þau hafi sem minnst áhrif á eyrnahlífarnar.
Fjarlægðu allt annað (t.d. hár, húfur, skartgripi,
heyrnartól, hreinlætishlífar o.s.frv.) sem gæti dregið úr
einangrunargildi eyrnahlífapúðanna og verndargildi
hlífanna.
e. Ekki beygja eða breyta lögun á höfuðspöng, hálsspöng
eða útbúnaðarfestingu og gættu þess að hún sé nógu
öflug til þess að halda eyrnahlífunum tryggilega á sínum
stað.
f. Eyrnahlífar og einkum þó eyrnapúðar geta orðið lélegir
með tímanum og þá þarf að skoða með reglulegu
millibili í leit að t.d. sprungum og hljóðleka. Séu
heyrnarhlífapúðarnir notaðir reglulega, ber að skipta um
þá og frauðhringina að minnsta kosti tvisvar á ári til
þess að viðhalda fullnægjandi vernd, hreinlæti og
þægindum.
g. Sé ekki farið eftir ofangreindum kröfum, skerðir það
verndareiginleika heyrnarhlífanna verulega.
EN 352 Öryggisyfirlýsingar:
• Séu einnota hlífar notaðar getur það haft áhrif á
hljóðfræðilega eiginleika eyrnahlífanna.
• Ákveðin efnafræðileg efni geta valdið tjóni á vöru
þessari. Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda.
• H510F, H520F: Þessar heyrnarhlífar eru í stærðinni
stórar. Eyrnahlífar sem uppfylla kröfur EN 352-1 eru í
„millistærð" eða „lítilli stærð" eða „stórri stærð".
Eyrnahlífar í „millistærð" henta meirihluta notenda.
Eyrnahlífar í „lítilli stærð" eða „stórri stærð" eru
hannaðar fyrir notendur sem ekki geta notað millistærð
af eyrnahlífum.
63
IS
loading