3M DBI SALA ROLLGLISS R550 Manual De Instrucciones página 237

Ocultar thumbs Ver también para DBI SALA ROLLGLISS R550:
Tabla de contenido
Idiomas disponibles
  • ES

Idiomas disponibles

  • ESPAÑOL, página 117
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
Vinsamlegast lestu, skildu og fylgdu öllum öryggisupplýsingum í þessum leiðbeiningum áður en þetta fullbúna björgunarkerfi er
notað. EF LEIÐBEININGUM ÞESSUM ER EKKI FYLGT EFTIR GETUR ÞAÐ VALDIÐ ALVARLEGUM MEIÐSLUM EÐA DAUÐA.
Leiðbeiningar þessar verður að afhenda notanda þessa búnaðar. Geymdu þessar leiðbeiningar til að styðjast við í framtíðinni.
Tilætluð notkun:
Þetta fullbúna björgunarkerfi er ætlað til notkunar sem hluti af heildarfallvarnarkerfi fyrir einstaklinga og/eða björgunarkerfi.
Öll önnur notkun, þ.m.t., en takmarkast ekki við, meðhöndlun efna, notkun í afþreyingar- eða íþróttaskyni eða önnur notkun sem ekki er lýst í
notandaleiðbeiningunum, er ekki samþykkt af 3M og gæti valdið alvarlegum meiðslum eða dauða.
Einungis þjálfaðir notendur á vinnustað skulu nota þetta kerfi.
!
VIÐVÖRUN
Þetta fullbúna björgunarkerfi er ætlað til notkunar sem hluti af heildarfallvarnarkerfi fyrir einstaklinga og/eða björgunarkerfi. Ætlast er til að allir
notendur séu fullþjálfaðir í öruggri uppsetningu og notkun fullbúna björgunarkerfisins. Röng notkun þessa kerfis getur valdið alvarlegum
meiðslum eða dauða. Til að tryggja rétt val, notkun, uppsetningu, viðhald og þjónustu skaltu lesa þessar notandaleiðbeiningar og allar
ráðleggingar framleiðanda, ræða við yfirmann þinn eða hafa samband við tækniþjónustu 3M.
Til að lágmarka þá áhættu sem tengist vinnu með fullbúnu björgunarkerfi sem getur, í versta falli, valdið alvarlegum meiðslum
eða dauða, skaltu gera eftirfarandi:
-
Skoðaðu kerfið fyrir hverja notkun og að minnsta kosti árlega. Skoðaðu það í samræmi við notandaleiðbeiningarnar.
-
Ef skoðunin leiðir í ljós óöruggt ástand eða galla í búnaðinum eða hluta hans skaltu taka búnaðinn úr umferð og gera við hann eða
endurnýja í samræmi við notandaleiðbeiningar.
-
Ef kerfið hefur stöðvað fall eða orðið fyrir höggi skaltu merkja kerfið sem „ÓNOTHÆFT" og taka það tafarlaust úr notkun. Skoðaðu og
meðhöndlaðu kerfið í samræmi við notandaleiðbeiningar.
-
Tryggðu að ekkert geti flækst í og hindrað björgunarkerfið og líflínuna, þar á meðal aðrir starfsmenn, þú sjálf(ur) og nærliggjandi hlutir.
-
Fylgdu öllum leiðbeiningum framleiðanda þegar líflína er tengd.
-
Við björgunaraðgerðir skaltu ávallt nota öryggisráðstafanir til fallvarnar samkvæmt björgunaráætlun viðkomandi vinnustaðar.
-
Ekki snerta hluta búnaðar sem verða fyrir miklum núningi við eða eftir mikið fall, þar sem hlutarnir geta hitnað og valdið brunasárum.
-
Tryggðu að viðeigandi vörn fyrir brúnir sé notuð ef líflínan gæti komist í snertingu við skarpar brúnir eða horn.
-
Tryggðu greiða leið fyrir fallið og að lendingarsvæðið sé laust við hindranir eða hættur.
-
Tryggðu að öll kerfi/undirkerfi sem eru samsett úr íhlutum mismunandi framleiðenda séu samhæfð og mæti kröfum viðeigandi staðla,
þ.m.t. staðlinum ANSI Z359 eða öðrum viðeigandi fallvarnarkóðum, -stöðlum eða -kröfum. Leitaðu ávallt ráða hjá hæfum og/eða
vottuðum aðila áður en þessi kerfi eru notuð.
-
(SJÁLFVIRKUR SIGBÚNAÐUR) Aðeins til notkunar við björgunaraðgerðir.
-
(SJÁLFVIRKUR SIGBÚNAÐUR) Skráðu alltaf notkunina eins og tilgreint er í notandaleiðbeiningunum og taktu búnaðinn úr notkun í
samræmi við þær takmarkanir á notkun sem gefnar eru í leiðbeiningunum.
-
(R550 BÚNAÐUR MEÐ HANDHJÓLI) Tryggðu að stjórnandinn hafi ávallt stjórn á handhjólinu þegar kerfið er undir álagi.
-
(REIPISKERFI MEÐ LÍFLÍNU) Aðeins má nota samþykkt reipi sem lýst er í notandaleiðbeiningunum.
Til að minnka áhættuna sem fylgir því að starfa hátt uppi, sem gæti, ef ekki er komið í veg fyrir það, valdið alvarlegum
meiðslum eða dauða:
-
Tryggðu að heilsa þín og líkamlegt ástand geri þér örugglega kleift að þola allt það álag sem fylgir því að starfa hátt uppi. Ráðfærðu þig
við lækni ef þú ert með einhverjar spurningar varðandi hæfni þína til að nota þennan búnað.
-
Aldrei skal fara yfir leyfilega getu fallvarnarbúnaðarins.
-
Aldrei skal fara umfram hámarkslengd frjáls falls sem fallvarnarbúnaðurinn leyfir.
-
Ekki nota neinn fallvarnarbúnað sem bilar við prófun eða við eftirlit, eða ef þú hefur áhyggjur af notkun búnaðarins eða telur að hann
henti ekki í það verk sem er fyrir höndum. Hafðu samband við tæknilega þjónustu 3M ef þú ert með einhverjar spurningar.
-
Sum undirkerfi og samsetningar íhluta geta truflað notkun þessa búnaðar. Einungis skal nota tengingar sem eru samhæfðar við þennan
búnað. Ráðfærðu þig við 3M fyrir notkun þessa búnaðar ef hann er notaður með íhlutum eða undirkerfum öðrum en þeim sem er lýst í
notandaleiðbeiningunum.
-
Gríptu til viðbótar varúðarráðstafana við vinnu nálægt tækjabúnaði sem er á hreyfingu (dæmi: á olíuborpöllum), nálægt rafmagnshættu,
við hátt hitastig, við íðefnahættu, þar sem sprengihætta er eða eitraðar lofttegundir, skarpar brúnir, eða undir hlutum sem gætu fallið á
þig eða á fallvarnarbúnaðinn sjálfan.
-
Notaðu Arc Flash- eða Hot Works-kerfi þegar þú vinnur í mjög heitu umhverfi.
-
Forðastu yfirborðsfleti og hluti sem geta skaðað notanda eða búnaðinn.
-
Tryggðu að það sé viðeigandi pláss til að falla þegar þú vinnur hátt uppi.
-
Aldrei breyta eða umbreyta fallvarnarbúnaðinum. Einungis 3M eða aðilar sem hafa skriflegt umboð frá 3M mega gera við þennan búnað.
-
Áður en fallvarnarbúnaður er notaður skaltu tryggja að neyðaráætlun sé til um hvernig bregðast skuli samstundis við ef fall eða slys á
sér stað.
-
Ef fall á sér stað skaltu strax leita læknishjálpar fyrir þann starfsmann sem fallið hefur.
-
Ekki má nota líkamsbelti til að stöðva fall. Einungis skal nota líkamsöryggisbelti.
-
Lágmarka skal sveiflur með því að vinna eins beint fyrir neðan festipunktinn og mögulegt er.
-
Ef þjálfun fer fram með þessum búnaði verður að nota annað fallvarnarkerfi, þannig að sá sem er í þjálfun sé ekki í hættu við að falla
óvart til jarðar.
-
Alltaf skal nota viðeigandi persónuhlífar þegar verið er að setja upp, nota eða hafa eftirlit með búnaðinum/kerfinu.
EYÐUBLAÐ NR.: 5908259 ENDURSK.: A
237
IS
Tabla de contenido
loading

Tabla de contenido